Fréttir

true

Verulega dregur úr eldsneytisnotkun í sjávarútvegi

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafa gert skýrslu um olíunotkun í sjávarútvegi og væntanlega notkun til ársins 2030, auk annarra umhverfisþátta í starfsemi sjávarútvegsfyrirtækja. „Mikið hefur áunnist á undanförunum áratugum og mjög hefur dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda sem rekja má til sjávarútvegs á Íslandi. Sú þróun heldur áfram á komandi árum. Einkum er horft til áranna…Lesa meira

true

Íbúar í Borgarnesi hafa aldrei verið fleiri

Á vef Borgarbyggðar er sagt frá því að 11. desember síðastliðinn hafi íbúar Borgarbyggðar verið 3.750. Hefur þeim fjölgað um 70 síðan 11. desember 2016. Flestir hafa íbúar verið rétt tæplega 3.800 en það var árið 2008. Þar af eru íbúar í Borgarnesi rúmlega 2000 og hafa þeir aldrei verið fleiri.Lesa meira

true

Styrktarleik fyrir Kidda Jens lauk með jafntefli

Síðastliðinn laugardag fór fram æfingaleikur í knattspyrnu í Akraneshöllinni þar sem meistaraflokkur karla í ÍA tók á móti Val. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli. Í lýsingu á vef KFÍA segir að leikurinn hafi farið vel af stað og nokkuð jafnræði hafi verið með liðunum. Valsmenn komust þó yfir seint í fyrri hálfleik og tvöfölduðu forskot…Lesa meira

true

Kynntu Laufey ísinn á jólamarkaði

Síðastliðinn laugardag var jólamarkaður haldinn í gömlu hlöðunni í Nesi í Reykholtsdal. Þar kenndi ýmissa grasa í jólatengdum varningi, matvöru og fleiru. Meðal annars var kynnt til leiks ný ísgerð í Brekkukoti í sömu sveit sem systkinin Halldóra Lóa og Helgi Eyleifur Þorvaldsbörn standa fyrir. Ísinn þeirra verður seldur undir vörumerkinu Laufey, til heiðurs ömmu…Lesa meira

true

Bæði Vesturlandsliðin í undanúrslit

Leikið var í átta liða úrslitum Maltbikars kvenna í körfuknattleik í gær. Skallagrímur valtaði yfir 1. deildar lið ÍR í Borgarnesi, 92-47, en Snæfell lagði Val í æsispennandi og dramatískum leik í Stykkishólmi, 75-73. Bæði Skallagrímur og Snæfell hafa þar með tryggt sér farseðilinn í Laugardalshöllina, þar sem undanúrslitin fara fram. Dregið verður í undanúrslitum…Lesa meira

true

Vilja gefa jólaljósunum lengra líf

Endurvinnsluátakinu „Gefum jólaljósum lengra líf – endurvinnum álið í sprittkertunum“ var ýtt úr vör í liðinni viku af Guðmundi Inga Guðbrandssyni umhverfis- og auðlindaráðherra. Tilgangurinn með átakinu er að fá fjölskyldur til að skila álinu í sprittkertum til endurvinnslu og efla vitund Íslendinga um mikilvægi þess að endurvinna það ál sem fellur til á heimilum…Lesa meira

true

Snæfell missti sigurinn úr greipum sér

Snæfellingar máttu sætta sig við tap gegn Hamri, 105-99, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudag. Snæfell hafði undirtökin stærstan hluta leiksins en heimamenn náðu forystunni í fjórða leikhluta og tókst að halda henni til leiksloka. Snæfell byrjaði leikinn betur og hafði sex stiga forystu eftir nokkurra mínútna leik, 8-14.  Heimamenn…Lesa meira

true

Andlausir Skagamenn lágu fyrir Gnúpverjum

ÍA tók á móti Gnúpverjum í 1. deild karla í körfuknattleik að kvöldi föstudags. Skemmst er frá því að segja að Skagamenn virkuðu hálf andlausir í leiknum og það kann ekki góðri lukku að stýra. Gnúpverjar stjórnuðu frá upphafi til enda og unnu stórt, 76-100. Gestirnir skoruðu fyrstu stigin en eftir þriggja mínútna leik komst…Lesa meira

true

Jólapeysudagur í FSN

Fimmtudaginn 7. desember var svokallaður jólapeysudagur í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Þá mættu kennarar, starfsmenn og nemendur í jólapeysum í skólann. Það var töluvert meiri þátttaka úr röðum starfsmanna skólans en þó var einn og einn nemandi sem skartaði fagurri jólapeysu í tilefni dagsins. Kennarar og starfsmenn stilltu sér upp fyrir fréttaritara enda vakti þetta…Lesa meira

true

Viðey RE á heimsiglingu

Ísfisktogaranum Viðey RE var á fimmtudaginn siglt af stað frá Tyrklandi áleiðis til Íslands. Gert er ráð fyrir að siglingin taki hálfan mánuð og er skipið væntanlegt til Reykjavíkur skömmu fyrir jól. Viðey er síðasta skipið í röð þriggja nýrra ísfisktogara sem Celíktrans skipasmíðastöðin í Tyrklandi smíðaði fyrir HB Granda, en áður voru uppsjávarskipin Venus…Lesa meira