Fréttir

true

„Skiptir miklu að traust og vinátta ríki milli forystufólks ríkisstjórnarflokkanna“

Við síðustu alþingiskosningar fékk Sjálfstæðisflokkurinn í Norðvesturkjördæmi 4.233 atkvæði, eða 24,5% fylgi. Flokkurinn tapaði einum þingmanni en hélt tveimur, þeim Haraldi Benediktssyni og Þórdísi Kolbúnu R Gylfadóttur. „Ég var náttúrlega svekktur með að þetta færi svona, að Teitur Björn félli af þingi. Í mér blundar keppnisskap og mér líkar illa að tapa. Engu að síður…Lesa meira

true

HSH kaus sér nýja stjórn

Héraðsþing HSH var haldið á mánudaginn en það hafði ekki verið haldið í tvö ár. Á þinginu, sem fór fram í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík, var ný stjórn og varastjórn kosin. Hjörleifur K. Hjörleifsson var kosinn formaður ásamt öðru nýju stjórnarfólki. Ragnhildur Sigurðardóttir, sem sat í starfsstjórn HSH í fyrra var líka kosin í stjórnina…Lesa meira

true

Efni úr Ólafsvíkurvelli ekið í vegaxlir

Segja má að hluti af fótboltavellinum í Ólafsvík hafi fengið nýjan tilgang, en það hefur ekki ekki farið fram hjá íbúum á svæðinu að þessa dagana standa yfir framkvæmdir á Ólafsvíkurvelli. Verið er að jarðvegskifta undir gerfigras eins og fram hefur komið í Skessuhorni. Ákveðið var að nota hluta af efninu sem til féll til…Lesa meira

true

Einstök stemning á jólaljúfmetismarkaði

Jólaljúfmetismarkaður Stykkishólmz Bitter var haldinn í Nýræktinni í Stykkishólmi um liðna helgi, á öðrum sunnudegi í aðventu. Þar gafst gestum og gangandi kostur á að bragða á ljúfmeti frá veitingamönnum og matvælaframleiðendum í Stykkishólmi og nágrenni. Markaðurinn var afar vel sóttur, að því er fram kemur á Facebook-síðu Stykkishólmz Bitter. Er það mat aðstandenda hans…Lesa meira

true

Nægilegur hiti fannst við ráðhússvegg til að knýja varmadælu

Snæfellsbær lét nú í byrjun mánaðarins bora tilraunaholu við Ráðhús Snæfellsbæjar á Hellissandi. Með þessari borun var verið að kanna jarðlögin en þau eru nokkuð flókin blanda m.a. af klöpp og hrauni. Það var Ræktunarsamband Flóa og Skeiða sem sá um borunina. Að sögn Kristins Jónassonar bæjarstjóra Snæfellsbæjar tókst borunin vel en töluvert vatn og…Lesa meira

true

Nafnasamkeppni um sameinað hestamannafélag

Vinnuhópur um sameiningu hestamannafélaganna Faxa og Skugga, sem hefur það hlutverk að fylgja eftir samþykkt félaganna frá 30. nóvember síðastliðnum um sameiningu Faxa og Skugga, hefur ákveðið að efna til samkeppni um nafn á félaginu. Af því tilefni er óskað eftir hugmyndum að nýju nafni á hestamannafélagið. Tillögum að nafni má skila á netfangið umsb@umsb.is…Lesa meira

true

Vesturlandsliðin gætu mæst í úrslitum

Dregið var í undanúrslitum Maltbikars kvenna og karla í körfuknattleik nú í hádeginu. Drátturinn fór fram í höfuðstöðvum Ölgerðarinnar, sem er aðalstyrktaraðili keppninnar. Í bikarkeppni kvenna voru tvö Vesturlandslið í pottinum, Snæfell og Skallagrímur, en þau mættust einmitt í undanúrslitum síðasta vetur. Undanúrslitarleikir kvenna fara að þessu sinni fram í Laugardalshöll fimmtudaginn 11. janúar kl.…Lesa meira

true

Stofnvísitala þorsks og gullkarfa í sögulegu hámarki

„Stofnvísitölur þorsks og gullkarfa eru þær hæstu síðan mælingar hófust árið 1996,“ segir í tilkynningu frá Hafrannsóknastofnun. Stofnmæling botnfiskstegunda að haustlagi (haustrall) fór fram dagana 4. október til 9. nóvember síðastliðinn. Rannsóknasvæðið var umhverfis Ísland allt niður á 1500 m dýpi. Alls var togað með botnvörpu á 375 stöðvum. Rannsóknaskipið Árni Friðriksson RE og togarinn…Lesa meira

true

Berglind Gunnarsdóttir íþróttamaður HSH 2017

Á 77. héraðsþingi Héraðssamband Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu, HSH, sem haldið var í gær var Berglind Gunnarsdóttir körfuknattleikskona úr Umf. Snæfelli kjörin íþróttamaður HSH 2017. Aðrir íþróttamenn voru einnig heiðraðir fyrir góðan árangur í sinni íþróttagrein auk þess sem veitt var viðurkenning fyrir vinnuþjark ársins.   Eftirtaldir hlutu viðurkenningar: Blakmaður HSH 2017 – Svana Björk Steinarsdóttir,…Lesa meira

true

Samningur um rekstur Snorrastofu til þriggja ára

Um miðjan nóvember var undirritaður í mennta- og menningarmálaráðuneytinu nýr samningur Snorrastofu við ríkið um rekstur stofnunarinnar til næstu þriggja ára. Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu, Björn Bjarnason, formaður stjórnar hennar, og Kristján Þór Júlíusson ráðherra undirrituðu samninginn við hátíðlega athöfn. „Þetta er í fyrsta sinn frá því 2007 sem Snorrastofa fær staðfestan langan samning við…Lesa meira