Fréttir

true

Verulega dregur úr eldsneytisnotkun í sjávarútvegi

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafa gert skýrslu um olíunotkun í sjávarútvegi og væntanlega notkun til ársins 2030, auk annarra umhverfisþátta í starfsemi sjávarútvegsfyrirtækja. „Mikið hefur áunnist á undanförunum áratugum og mjög hefur dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda sem rekja má til sjávarútvegs á Íslandi. Sú þróun heldur áfram á komandi árum. Einkum er horft til áranna…Lesa meira

true

Nýir eigendur vinna að breytingum á Baulunni

Félagið Langholt ehf., sem á og rekur Bauluna í Borgafirði, hefur fengið nýja eigendur. Fyrri eigendur höfðu rekið félagið síðustu 17 ár með miklum sóma en það var 1. september sl. að nýir eigendur komu að rekstrinum. Elmar Guðlaugsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri félagsins. Hann hafði starfað hjá Ölgerðinni síðan 2009, síðast sem sölumaður á…Lesa meira

true

Rán Kristinsdóttir sæmd starfsmerki UMFÍ

Rán Kristinsdóttir hlaut á héraðsþingi Héraðssambands Snæfells- og Hnappadalssýslu, sem haldið var fyrr í vikunni, starfsmerki UMFÍ fyrir mikið og óeigingjarnt starf fyrir íþróttahreyfinguna í Snæfellsbæ. Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, afhenti Rán starfsmerkið. Rán hefur verið formaður Umf. Víkings í Ólafsvík síðan árið 2014. Hún hefur lagt mikla vinnu í að gera starf ungmennafélagsins…Lesa meira

true

„Dómgæsla snýst fyrst og síðast um mannleg samskipti“

Ívar Orri Kristjánsson á Akranesi var annar íslenskra dómara sem bættist á lista alþjóðadómara FIFA fyrir árið 2018, en listinn var birtur nýverið. Ívar hefur þó vitað lengi af þessu, eða allt frá því KSÍ hafði samband við hann í september og upplýsti að til stæði að tilnefna hann á lista alþjóðadómara fyrir Íslands hönd.…Lesa meira

true

Gefur upp leyniuppskrift í nýrri matreiðslubók

Matreiðslubókin „Pabbi, áttu fleiri uppskriftir,“ eftir Skagamanninn Smára Hrafn Jónsson matreiðslumeistara, kom út um miðjan október. Er þetta önnur matreiðslubókin sem hann gefur út en sú fyrri, „Pabbi áttu uppskrift“ kom út haustið 2014 og seldist upp og hefur ekki verið fáanleg í tvö ár. Smári er fæddur og uppalinn á Akranesi og hefur starfað…Lesa meira

true

Myndarlegur stuðningur Skagans3X við barna- og unglingastarf

„Fyrir hönd starfsmanna sinna vilja fyrirtækin Skaginn hf., Þorgeir & Ellert hf. og 3X Technology ehf. stuðla að bættum gæðum og faglegri vinnu við barna- og unglingastarf íþróttahreyfinga í heimabyggð. Við trúum á gildi íþróttaiðkunar til forvarna og viljum gjarnan að stuðningurinn verði nýttur í þágu þess,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækjunum. Stofnaðir hafa verið…Lesa meira

true

Tæpar sjö milljónir í verkefnastyrki á Vesturland

Í síðustu viku fór fram kynning á 100 verkefnum sem verða á dagskrá aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands 2018. Kynningin var haldin í Safnahúsinu við Hverfisgötu að viðstöddum fulltrúum verkefna af öllu landinu. „Á næsta ári fögnum við aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands. Afmælisnefnd var falið, samkvæmt þingsályktun, að standa fyrir hátíðarhöldum um land allt.…Lesa meira

true

Feiknaveiði á Vestfjarðarmiðum þegar hafísinn hopar

,,Ætli veiðinni sé ekki best lýst með því að segja að hún hafi verið upp og ofan. Hafís og brælur voru að gera okkur lífið leitt á tímabili en ef vindáttin var rétt og hafísinn hopaði þá var stundum feiknaleg veiði,“ segir Eiríkur Jónsson, skipstjóri á Sturlaugi H. Böðvarssyni AK í samtali við HB Granda…Lesa meira

true

Jólaútvarp GSNB ómar í vikunni

Útsendingar Jólaútvarps Grunnskóla Snæfellsbæjar hófust í gærmorgun, þriðjudaginn 11. desember og munu útsendingar standa yfir fram á laugardagskvöld. Undirbúningurinn á sér þó nokkurn aðdraganda, því síðustu vikur hafa yngri bekkir skólans unnið hörðum höndum að því að taka upp sína þætti í stúdíói. Eldri krakkarnir verða hins vegar í beinni útsendingu. „Þetta hefur verið þónokkur…Lesa meira

true

Sterkari fjárhagur bæjarsjóðs og framkvæmdir framundan

Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2018 og þriggja ára áætlun 2019 til 2021 var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Akraness síðastliðinn þriðjudag. Einnig var fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun samþykkt. Í tilkynningu frá bæjarstjórn segir: „Sterkari fjárhagstaða verður nýtt til eflingar þjónustu við íbúa og uppbyggingu innviða í fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar 2018.“ Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs fyrir rekstrarárið 2018 gerir ráð fyrir…Lesa meira