
Hestamannafélagið Dreyri áformar að reisa reiðskemmu á Æðarodda og hefur leitað stuðnings Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar. Bæjarráð Akraness fjallaði um erindi hestamannafélagsins á fundi sínum 16. nóvember. Tók ráðið jákvætt í erindið og var bæjarstjóra falið að ræða við Hvalfjarðarsveit um frekari úrvinnslu málsins. Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar fjallaði svo um málið á fundi sínum…Lesa meira








