Fréttir

true

Sterkastir í sínum aldursflokki

Ungir og efnilegir körfuknattleiksmenn í 8. flokki drengja hjá Skallagrími áttu góðu gengi að fanga um síðustu helgi. Þeir léku fjóra leiki í A-riðli Íslandsmótsins í körfuknattleik, en riðillinn var spilaður á heimavelli í Borgarnesi. Skallagrímspiltar gerðu sér lítið fyrir og unnu alla leikina og það sannfærandi. Sigruðu piltarnir riðilinn og þar með skipuðu þeir…Lesa meira

true

Aðalvél Breiðafjarðarferjunnar Baldurs er biluð

Í tilkynningu frá Sæferðum fyrir um klukkustund kemur fram að vegna bilunar í aðalvél Baldurs falla allar ferðir ferjunnar niður þar til annað verður tilkynnt. „Viðgerð hefur staðið yfir frá því í gær og var unnið í alla nótt. Ekki er ljóst á þessari stundu hve langt stopp ferjunnar verður,“ segir í tilkynningunni. Sæferðir mun…Lesa meira

true

Vonskuveðri spáð um norðan- og norðvestanvert landið

Í dag er því spáð að hríðarbakki færist yfir landið úr norðri. Síðdegis mun veður versna til muna á Norðurlandi og norðanverðum Vestfjörðum með ofankomu og skafrenningi í 15-20 m/sek vindi. Einnig er spáð skafrenningi á sunnanverðum Vestfjörðum, Snæfellsnesi, Dölum og í Borgarfirði. Hálka og éljagangur er nú víða á vegum á Vesturlandi. Þeir sem…Lesa meira

true

Snæfell vann baráttusigur á Breiðabliki

Snæfell galopnaði toppbaráttu 1. deildar karla í körfuknattleik með góðum sigri á Breiðabliki, 103-99, þegar liðin mættust í spennandi leik í Stykkishólmi í gær. Snæfellingar mættu ákveðnir til leiks og höfðu undirtökin í upphafsfjórðungnum. Þeir léku góða vörn sem skilaði nokkrum stolnum boltum og auðveldum körfum í kjölfarið. Í stöðunni 19-11 leist gestunum ekki á…Lesa meira

true

Skagamenn einir á botni deildarinnar

Skagamenn tóku á móti Fsu í botnslag 1. deildar karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Liðin hafa átt erfitt uppdráttar í upphafi móts og voru án stiga í tveimur neðstu sætunum fyrir leikinn. Svo fór að lokum að FSu hafði sigur eftir jafnan leik, 80-87. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en heilt yfir…Lesa meira

true

Vegagerðin minnir á vetrarþjónustuna

Vegagerðin vill vekja athygli vegfarenda á því að aðeins örfáir vegir eru í þjónustu allan sólarhringinn. „Í grennd við marga þéttbýlisstaði eiga vegir að vera færir til klukkan 22 en víða lýkur þjónustu um kvöldmatarleytið eða jafnvel enn fyrr – og sumir vegir eru ekki í daglegri þjónustu. Eftir að þjónustu lýkur getur færð spillst…Lesa meira

true

Sansa þarf matarpantanir hjá Sansa með óhefðbundnum leiðum

Veitingafyrirtækið Sansa á Akranesi er eitt fjölmargra fyrirtækja sem hýsti pantanavef sinn hjá 1984.is, fyrirtækinu sem kerfishrun varð hjá síðastliðinn miðvikudag. Vefurinn sansa.is liggur enn niðri, en hægt er að gera matarpantanir fyrir næstu viku með þrennum hætti. Hægt er að senda tölvupóst á sansa@sansa.is, panta á Facebook síðu fyrirtækisins eða hringja í síma 865-2580.…Lesa meira

true

Endurskrá þarf upplýsingar á atburðaskrá og smáauglýsingar

Fréttavefur Skessuhorns var í þeim hópi fyrirtækjavefja sem vistaður var hjá 1984.is og hrundi síðastliðið miðvikudagskvöld. Mánaðar gamalt afrit var til af vefnum og tókst að koma nýrri vefsíðu í loftið á hádegi á föstudaginn sem byggði á þeim gögnum. Ekki liggur þó fyrir hvort náist að endurheimta öll þau gögn sem týndust, en það…Lesa meira

true

Lions bauð upp á blóðsykursmælingu

Föstudaginn 17. nóvember síðastliðnn bauð Lionsklúbbur Grundarfjarðar íbúum bæjarins upp á ókeypis blóðsykursmælingu rétt fyrir innan innganginn í Kjörbúðinni. Það vorur sjúkraflutningamenn bæjarins sem framkvæmdu mælingarnar og fengu góðar viðtökur. Hátt á annað hundrað manns nýttu sér þessa þjónustu enda gott að vera vakandi yfir ástandi á eigin líkama.Lesa meira

true

Vigdís Grímsdóttir hlaut Verðlaun Jónasar

Vigdís Grímsdóttir rithöfundur hlaut Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu síðastliðinn fimmtudag. Þá var Gunnari Helgasyni við sama tilefni veitt sérstök viðurkenning fyrir stuðning við íslenska tungu. Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar eru veitt einstaklingum sem hafa með sérstökum hætti unnið íslenskri tungu gagn í ræðu eða riti, með skáldskap, fræðistörfum eða kennslu og stuðlað að…Lesa meira