Fréttir

true

Ný ráðuneytisstofnun um félagsþjónustu

Stjórnsýsla og eftirlit með félagsþjónustu sem veitt er af hálfu sveitarfélaga, opinberra stofnana eða á grundvelli samninga verða falin nýrri ráðuneytisstofnun sem unnið er að koma á fót í velferðarráðuneytinu. Undir félagsþjónustu sveitarfélaga heyrir t.d. ýmis þjónusta sem snýr að börnum, fjölskyldum, fötluðu fólki, öldruðum og innflytjendum. Auglýst hefur verið eftir stjórnanda stofnunarinnar. „Ákvörðun um…Lesa meira

true

Aðgerðum að ljúka í Staðarsveit

Rúta með 15 manns fór útaf veginum og valt á hliðina skammt frá bænum Kálfárvöllum í Staðarsveit á sjötta tímanum í dag. Sex manns slösuðust og voru fluttir með sjúkrabílum undir læknishendur. Rútan flutti erlenda ferðamenn en bílstjórinn er íslenskur. Aðstæður voru erfiðar til aksturs á svæðinu; hvasst, töluverð hálka á slysstað og snjór. Fjölmennt…Lesa meira

true

Mikill viðbúnaður vegna rútuslyss

Viðbragðsaðilar hafa verið kallaðir út vegna rútuslyss við Lýsuhól í Staðarsveit nú á sjötta tímanum í dag. Björgunarsveit, lögregla og slökkvilið ásamt sjúkraflutningamönnum eru á leið á vettvang. Fimmtán manns voru í rútunni og eru nokkrir þeirra slasaðir. Fréttin verður uppfærð síðar í kvöld.Lesa meira

true

Kalt alla þessa viku

Veðurstofan spáir kuldatíð næstu daga. Allt af 12 stiga frost er í dag, kaldast inn til landsins. Víðáttumikil hæð mun hreiðra um sig yfir Grænlandi og beina lægðum suður fyrir land næstu daga. Við þær aðstæður verður viðvarandi köld norðaustanátt alla vikuna með éljagangi fyrir norðan og austan, en lengst af björtu veðri sunnan heiða.…Lesa meira

true

Frábær árangur Valdísar Þóru – tryggði sér keppnisrétt á næsta ári

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, náði sínum besta árangri á ferlinum á Evrópumótaröðinni um helgina þegar hún endaði í þriðja sæti á Sanya Ladies Open. Mótinu lauk síðustu nótt að íslenskum tíma. Með árangrinum færðist Valdís upp um fjölmörg sæti á stigalista mótaraðarinnar og er hún búin að tryggja sér keppnisrétt á mótaröðinni…Lesa meira

true

Lesið fyrir yngstu kynslóðina

Mánudaginn 13. nóvember hófst Norræna bókasafnavikan, sem Samband norrænu félaganna stendur fyrir um öll Norðurlönd og nágrenni. Í Snorrastofu í Reykholti komu góðir gestir frá Kleppjárnsreykjum og Hnoðrabóli, sem hreiðruðu um sig í ljósaskiptunum og hlýddu á sögu Mauri Kunnas, Fjársjóðseyjuna, sem Ingibjörg Daníelsdóttir á Fróðastöðum las. Að lestri loknum áttu börnin næðisstund á safninu,…Lesa meira

true

Asco Arvester hlaut Frumkvöðlaverðlaun SSV 2017

Frumkvöðladagur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi var haldinn við hátíðlega athöfn í húsnæði Háskólans á Bifröst síðastliðinn miðvikudag. Liður í dagskrá frumkvöðladagsins var afhending Frumkvöðlaverðlauna SSV fyrir árið 2017. Komu þau í hlut nýsköpunarfyrirtækisins Asco Harvester ehf. í Borgarnesi. Fyrirtækið var stofnað af systkinunum Ómari Arndal, Ingvari Arndal og Önnu Ólöfu Kristjánsbörnum. Fyrirtækið Asco Harvester framleiðir…Lesa meira

true

Elsta stig grunnskólanna á Tæknimessu

Á fimmtudag í síðustu viku mættu um 650 nemendur af elsta stigi grunnskólanna á Vesturlandi til Tæknimessu í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Var þetta í annað sinn sem Tæknimessa er haldin en markmið hennar er að kynna fyrir nemendum það nám sem er í boði í Fjölbrautaskóla Vesturlands á sviði iðn- og verkgreina og hvaða…Lesa meira

true

Skipuleggja góðgerðartónleika til styrktar Mæðrastyrksnefnd

Það er kalt í veðri þegar blaðamaður hittir þrjár tónelskar stúlkur á kaffihúsi á Akranesi á laugardagsmorguninn síðasta, þegar sólin skein blítt á frosinn snjó. Á kaffihúsinu sitja tvær ungar stúlkur við borð með jólasveinahúfur og augljóst að þar eru viðmælendur mættir. Jólasnjórinn sem féll daginn áður hefur greinilega haft áhrif á jólaskapið í þeim…Lesa meira

true

Kerfishrun orsakar að þúsundir vefsíðna liggja enn niðri

Algjört kerfishrun varð að kvöldi síðasta miðvikudags hjá vefhýsingarfyrirtækinu 1984.is. Það hýsir þúsundir íslenskra vefsíðna og póstþjóna og þar á meðal vef okkar skessuhorn.is. Vefurinn lá af þeim sökum niðri frá miðvikudegi og þar til í hádeginu í dag. Ekki er enn búið að komast að rót vandans hjá 1984.is og viðbúið að mikið af…Lesa meira