Fréttir

true

Framkvæmdir ganga vel við ljósleiðaralögn í Snæfellsbæ

Undanfarið hefur á vegum Snæfellsbæjar verið unnið að lagningu ljósleiðara frá Stekkjarvöllum að Malarrifi annars vegar og frá Ólafsvík að Mávahlíð hins vegar. Hefur vinnan gengið ágætlega en búið er að plægja stofnlögnina sunnanmegin en eftir er að plægja á Arnarstapa og tengilagnir á Hellnum. Frá Ólafsvík að Mávahlíð er stofnlögnin komin í jörðu en…Lesa meira

true

Ófærð á heiðum og björgunarsveitir til aðstoðar í nótt

Hálka eða snjóþekja er á vegum á Vesturlandi og ófært á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og Fróðárheiði. Mjög hvasst er á sunnanverðu Snæfellsnesi. Vegfarendur hafa í nótt og morgun lent í vandræðum einkum á Holtavörðuheiði þar sem fjöldi bíla situr fastur. Mikið óveður geisaði á heiðinni í nótt og óskaði lögregla eftir því síðla nætur að björgunarsveitir…Lesa meira

true

Fyrirmyndardagur til að auka möguleika til atvinnuþátttöku

Fyrirmyndardagurinn verður næstkomandi föstudag, 24. nóvember. Markmið fyrirmyndardagsins er að fyrirtæki og stofnanir bjóði atvinnuleitendum með skerta starfsgetu að vera gestastarfsmenn fyrirtækisins í einn dag, eða hluta úr degi. Dagurinn er því mikilvægur til að auka möguleika fólks með skerta starfsgetu til fjölbreyttari atvinnuþátttöku. Með því fá gestastarfsmenn innsýn í fjölbreytt störf og starfsmenn fyrirtækja…Lesa meira

true

Tveir leikir framundan hjá karlalandsliðinu

Craig Pedersen, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfuknattleik, tilkynnti á mánudag tólf manna hóp sem heldur til Tékklands og mætir heimamönnum næstkomandi föstudag. Grundfirðingurinn Hlynur Bæringsson, leikmaður Stjörnunnar, er að venju meðal leikmanna hópsins en Borgnesingurinn Pavel Ermolinskij, leikmaður KR, er fjarri góðu gamni vegna meiðsla. Borgfirðingurinn Arnar Guðjónsson er sem fyrr aðstoðarþjálfari liðsins. Leikur liðsins…Lesa meira

true

Sundfólk af Akranesi gerði gott mót

Sundgarpar úr Sundfélagi Akraness áttu góðu gengi að fagna á Íslandsmeistaramótinu í 25 metra laug sem haldið var um helgina. Ágúst Júlíusson fagnaði sigri í 100 metra flugsundi og varð þriðji í 50 metra flugsundi. Sævar Berg Sigurðsson vann til silfurverðlauna í 100 og 200 metra bringusundi. Sævar fékk einnig brons í 50 metra bringusundi…Lesa meira

true

Fjölga verður snjómokstursdögum í uppsveitum Borgarfjarðar

Gunnlaugur A Júlíusson sveitarstjóri Borgarbyggðar hefur sent Samgönguráðuneytinu bréf þar sem hann ítrekar þá kröfu sveitarfélagsins að bætt verði úr vetrarþjónustu snjómoksturs í uppsveitum Borgarfjarðar. Vegagerðin fékk jafnframt afrit af bréfinu. Í dag er viðsjárverð færð á þessu svæði og samkvæmt upplýsingum Skessuhorns hafa hið minnsta fjórir bílar farið útaf á Borgarfjarðarbraut í dag vegna…Lesa meira

true

Kræklingur í Hvalfirði nú laus við eiturþörung

Matvælastofnun hefur síðastliðin tvö ár varað við neyslu kræklings úr Hvalfirði. Ástæða viðvörunar var sú að DSP þörungaeitur í skelkjöti hafði greinst yfir viðmiðunarmörkum og eitraður þörungur sem getur valdið DSP eitrun í skelfiski var á sveimi í firðinum síðastliðið ár. Var um óvenjulega langt tímabil að ræða sem varað var við neyslu kræklings af…Lesa meira

true

Gul viðvörun fyrir norðanvert Snæfellsnes og Dali

Veðurstofan spáir norðaustan hvassviðri eða stormi og snjókoma eða éljum um allt norðanvert landið í kvöld og næstu tvo daga. Nær svokallað gult ástand Veðurstofunnar allt suður á Snæfellsnes, um Dali, Vestfirði og Norðurland. Spáin fyrir Snæfellsnes og Dali: „Norðaustan hvassviðri eða stormur og snjókoma eða él, einkum norðantil á Snæfellsnesi. Búast má við slæmu…Lesa meira

true

Akranesferjan hefur farið síðustu ferð ársins

Akranesferja Sæferða hefur siglt sína síðustu ferð milli Akraness og Reykjavíkur þetta árið. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu ferjunnar í dag. Skipinu sjálfu verður nú siglt til annarra verkefna undan ströndum Spánar. Siglingarnar milli Akraness og Reykjavíkur hófust um miðjan júnímánuð og síðan þá hafa verið farnar áætlanaferðir þrisvar sinnum á dag, alla…Lesa meira

true

Matvælastofnun kynnir fyrir búfjáreigendum viðbrögð við náttúruhamförum

„Í ljósi þess að ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna vísbendinga um aukna virkni í Öræfajökli, vill Matvælastofnun minna dýraeigendur á að huga að áætlunum sínum um viðbrögð við náttúruhamförum. Þar sem náttúruhamfarir gera oft ekki boð á undan sér, ættu dýraeigendur að gera áætlanir um skyndileg viðbrögð við mismunandi vá og undirbúa aðstæður…Lesa meira