Fréttir

true

Hundar og kettir á veitingastöðum að uppfylltum skilyrðum

Nýlega tók gildi breyting á reglugerð um hollustuhætti um heimild til að koma með hunda og ketti á veitingastaði. Reglugerðin kveður meðal annars á um að eigendum eða rekstraraðilum veitingastaða „er gert heimilt“ að leyfa gestum að koma með hunda og ketti inn á staðinn, að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Heimildin gildir hvorki um veitingastaði né…Lesa meira

true

Sextán umferðaróhöpp vegna hálku og slæms veðurs

Alls urðu 16 umferðaróhöpp í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku og rekja má þau til hálku og slæms veðurs. Flest óhappanna voru slysalaus. Bíll lenti utanvegar við Fiskilæk í gærdag og valt en engin slys urðu á fólki. Var óhappið eitt þriggja umferðaróhappa í umdæminu í gær. Á mánudag urðu fjögur óhöpp í…Lesa meira

true

Afmælismálþing til heiðurs Guðrúnu Sveinbjarnardóttur fornleifafræðings

Í tilefni af sjötugsafmæli Guðrúnar Sveinbjarnardóttur fornleifafræðings, sem ættuð er frá Hurðarbaki í Reykholtsdal, gangast Hugvísindasvið Háskóla Íslands og Þjóðminjasafn íslands fyrir málþingi til heiðurs henni. Það fer fram laugardaginn 25. nóvember kl. 15 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu í Reykjavík. Dagskrá: 15.00-15.10         Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður býður gesti velkomna 15.10-15.30         Helgi Þorláksson: Hversu þverfaglegur geturðu…Lesa meira

true

Akranesstrætó fer um Vesturgötu frá föstudegi

Fyrri akstursleið Akranesstrætó, sem ekið er innanbæjar á Akranesi, tekur gildi á föstudaginn, 24. nóvember næstkomandi. Akstursleið strætisvagnsins var breytt í nóvember á síðasta ári vegna framkvæmda á Vesturgötu milli Stillholts og Háholts og stoppistöð nr. 22 færð að Heiðarbraut. Nú er framkvæmdum á þessum hluta götunnar lokið og Akranesstrætó verður á nýjan leik ekið…Lesa meira

true

Stofnar ráðgjafarfyrirtækið Effect

Eva Karen Þórðardóttir úr Reykholtsdal í Borgarfirði hefur nú stofnað fyrirtæki sem hefur fengið nafni Effect ráðgjöf. Eva Karen á og rekur fyrirtækið sjálf en að því koma ráðgjafar af ýmsum sviðum vinnumarkaðarins. Sjálf hefur hún lokið mastersprófi í Forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Stefnt er að ráðgjöf á landsvísu fyrir fyrirtæki til…Lesa meira

true

Flutningi Ísfisks á Akranes seinkar um nokkra mánuði

Eins og fram kom í fréttum síðastliðið sumar festi Ísfiskur í Kópavogi kaup á fiskvinnsluhúsum HB Granda við Bárugötu á Akranesi. Ráðgert var að flytja alla starfsemi fyrirtækisins þangað um næstu áramót. Nú liggur hins vegar fyrir að á því verður seinkun að hluta. „Ísfiskur mun hefja starfsemi á Akranesi í janúar með um tíu…Lesa meira

true

Hálka er á vegum á Vesturlandi

Í tilkynningu frá Vegagerðinni nú klukkan 8 í morgun kemur fram að víða á vegum á Vesturlandi er hálka, hálkublettir eða snjóþekja. Þá er eitthvað um éljagang í landshlutanum. Lokað er vegna óveðurs á vegkafla vestan við Búðir á Snæfellsnesi.Lesa meira

true

Andlát – Hildibrandur Bjarnason í Bjarnarhöfn

Hildibrandur Bjarnason bóndi, hákarlaverkandi og ferðafrömuður í Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi lést 16. nóvember síðastliðinn. Hildibrandur fæddist 18. nóvember 1936 í Asparvík á Ströndum. Foreldrar hans tóku sig upp af Ströndum með barnahópinn sinn og fluttu árið 1951 búferlum að Bjarnarhöfn í Helgafellssveit. Þar hefur Hildibrandur og fjölskylda hans rekið myndarbú með sauðfé og hross en…Lesa meira

true

Efnileg sundkona sem bætti nýlega tólf ára Akranesmet í skriðsundi

Brynhildur Traustadóttir er efnilegur sundkappi frá Akranesi sem stefnir langt á því sviði í framtíðinni. Hún er Skagastelpa í húð og hár, fædd 2001 og varð því 16 ára gömul fyrr á þessu ári. Brynhildur hefur náð mjög góðum árangri í sundinu og hefur til að mynda bætt tvö Akranesmet í sundi á þessu ári.…Lesa meira

true

Auglýst eftir umsækjendum um Eyrarrósina

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um Eyrarrósina, en það er viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar. Markmið Eyrarrósarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar, á sviði menningar og lista. Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík hafa staðið saman að verðlaununum frá upphafi, eða frá árinu 2005.…Lesa meira