Fréttir

true

UST leggst gegn þjónustusvæði vegna ísgangafyritækis

Umhverfisstofnun leggst gegn fyrirhugaðri uppbyggingu vegna starfsemi á og við Langjökul. Ferðaþjónustufyrirtækið Into the Glacier, sem á og rekur ísgöngin í Langjökli, vill reisa 300 fermetra skemmu, 150 fermetra móttökuhús og koma fyrir tveimur 20 feta gámum sem nýttir verða fyrir starfsmannaaðstöðu ofarlega í Húsafellslandi. Fyrirtækið áætlar að nýta 13 hektara landsvæði úr landi Húsafells…Lesa meira

true

Vonbrigði að botnfiskvinnslu á Akranesi verði hætt

„Það eru mikil vonbrigði að botnfiskvinnsla HB Granda á Akranesi muni hætta,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, í samtali við Skessuhorn. „Hins vegar er ljóst að mikil tækifæri eru fólgin í áframhaldandi viðræðum við fyrirtækið. Þó er of snemmt að greina frá því hvaða kosti er verið að skoða, en ljóst er að…Lesa meira

true

Enn logar sinueldur en mannvirki eru úr hættu

Slökkvistarf í Eyja- og Miklaholtshreppi hefur gengið vel nú síðdegis, en töluvert stórt land er brunnið í umfangsmiklum sinubruna sem hófst um miðjan dag. Að sögn slökkviliðsmanna sem Skessuhorn hefur rætt við eru mannvirki ekki lengur í hættu, hvorki á Vegamótum né Lágafelli. Eldurinn er nú einangraður ofan við þjóðveg, en vestan við afleggjarann á…Lesa meira

true

Barist er við sinueld í Eyja- og Miklaholtshreppi

Eldur kom upp í sinu í mólendi skammt sunnan við Dal í Eyja- og Miklaholtshreppi um nónbil í dag. Eldurinn náði að breiðast hratt út enda töluverður vindur á svæðinu og jörð þurr. Um tíma var óttast um mannvirki á Vegamótum og gróðrarstöðinni á Lágafelli. Að sögn tíðindamanns Skessuhorns á svæðinu hefur nú tekist að…Lesa meira

true

Önnur starfsemi á Akranesi heldur áfram

Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri HB Granda sagði nú síðdegis í samtali við Skessuhorn að það hafi verið fyrst í gær sem endanleg ákvörðun hafi verið tekin um lokun bolfiskvinnslunnar á Akranesi. Nú liggur ákvörðun hins vegar fyrir og flyst vinnsla á þorski frá Akranesi og til Reykjavíkur 1. september. Vilhjálmur neitar því aðspurður að þessi vinnsla…Lesa meira

true

„Reiðarslag en gott að nú liggur þetta fyrir“

Skúlína Hlíf Guðmundsdóttir, trúnaðarmaður starfsfólks í fiskvinnslu HB Granda á Akranesi, segir það að sjálfsögðu reiðarslag að fá tíðindi eins og þau að öllu starfsfólki á heilum vinnustað skuli vera sagt upp. „Samt var mesta áfallið búið að koma, það kom í mars þegar fyrirtækið tilkynnti okkur fyrst um áætlanir sínar. Nú þegar þetta liggur…Lesa meira

true

86 starfsmönnum HB Granda sagt upp

Forsvarsmenn HB Granda hafa tilkynnt fulltrúum Verkalýðsfélags Akraness og starfsmönnum í fiskvinnslu fyrirtækisins á Akranesi um uppsagnir 86 starfsmanna botnfiskvinnslu fyrirtækisins frá og með næstu mánaðamótum. Botnfiskvinnslunni á Akranesi verður lokað 1. september næstkomandi og hún sameinuð vinnslunni í Reykjavík. Greint var frá þessu á fundi forsvarsmanna fyrirtækisins með starfsmönnum sem hófst laust eftir kl. 15:00…Lesa meira

true

Starfsfólk og trúnaðarmenn boðaðir til fundar í dag

Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness greindir nú rétt í þessu frá því að Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri HB Granda hafi boðað sig og trúnaðarmenn HB Granda á Akranesi á fund kl. 14:15 í dag. „Viðræður á milli Akraneskaupstaðar og forsvarsmanna HB Granda hafa staðið yfir á undanförnum vikum en rétt í þessu hafði forstjóri HB Granda,…Lesa meira

true

Ævintýraleg fjölgun ferðamanna í apríl

Ferðamönnum hingað til lands fjölgaði í aprílmánuði um 62%, voru 153.536 nú en voru í apríl í fyrra 94.875. Fjölgun ferðamanna hingað til lands allt þetta ár, þ.e. janúar til apríl, er ívið minni, eða 55,7%. Þetta kemur fram í tölum sem Ferðamálastofa hefur birt á vef sínum. Til marks um þróunina má nefna að…Lesa meira

true

Víkingur Ó. semur við tvo miðjumenn

Knattspyrnudeild Víkings Ólafsvíkur samdi í gær við tvo leikmenn um að leika með liðinu í Pepsi deild karla í sumar. Það eru miðjumennirnir Kwame Quee og Eric Kwakwa. Kwame er sókndjarfur miðjumaður frá Síerra-Leóne, fæddur árið 1996 og leikur með FC Johansen í heimalandinu. Þrátt fyrir ungan aldur á hann að baki tólf landsleiki fyrir…Lesa meira