
Lokahóf útskriftarnema við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi var haldið fimmtudaginn 4. maí síðastliðinn. Af því tilefni mættu útskriftarnemarnir í skólann klæddir sem Pokémonarnir Pikachu og Charmander. Hópurinn hóf daginn á því að bjóða starfsfólki skólans í morgunverð klukkan átta og í framhaldinu var skemmtun á sal. Að því loknu fór hópurinn í óvissuferð og gleðskapnum…Lesa meira








