
Veröld
Veröld – Safn


Síðastliðinn laugardag var opnuð í Hallsteinssal Safnahúss Borgarfjarðar í Borgarnesi sýningin Brotabrot. Þar sýnir listahópurinn Arkir fjölbreytt úrval bókverka. Hópinn skipa: Anna Snædís Sigmarsdóttir, Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, Áslaug Jónsdóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Ingiríður Óðinsdótttir, Kristín Guðbrandsdóttir, Kristín Þóra Guðbjartsdóttir, Sigurborg Stefánsdóttir og Svanborg Matthíasdóttir. Verkin á sýningunni sameina mismunandi listform en í grunninn er unnið…Lesa meira


Svo virðist sem þjóðvegir landsins ætli að koma sérlega illa undan vetri. Víða eru að koma í ljós holur með hvössum brúnum þannig að fólk sprengir jafnvel dekkin á bílum sínum ef það gætir ekki að sér. Þegar allt er komið í óefni mæta svo velviljaði starfsmenn ríkisins með hjólbörur og handskóflur og moka kaldbiki…Lesa meira

IceGuys New generation og Krumla verður framlag MB Strákabandið IceGuys New gereration er skipað þremur hressum og hæfileikaríkum strákum í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Þetta eru þeir Ernir Daði Arnbergz Sigurðsson, Þorsteinn Logi Þórðarson og Kristján Karl Hallgrímsson. Þeir tóku þátt í undankeppni MB í janúar fyrir Söngkeppninna og báru sigur úr býtum með lagið…Lesa meira


Á síðustu vikum höfum við áþreifanlega fengið að finna fyrir duttlungum veðráttunnar. Hver lægðin á fætur annarri hafa vaðið yfir landið og fært með sér hvassviðri og hryssingslegt veður. Ástæðuna segja veðurfræðingar þá að tveir köldustu kjarnarnir yfir stóru meginlöndunum hafa komið sér í þægilega stöðu og dæla lægðum á færibandi til okkar. Annar þessara…Lesa meira

Borgfirðingurinn og tónlistarkonan Steinunn Þorvaldsdóttir frá Hjarðarholti gaf á föstudaginn út plötuna Vísur. Þar má finna níu frumsamin kórverk eftir Steinunni sem tekin voru upp í Reykholtskirkju í nóvember og í Seltjarnarneskirkju í janúar. Jón Sigurður Snorri Bergsson sá um upptökur en Borgfirðingarnir Gunnar Árni Hreiðarsson og Jakob Grétar Sigurðason hljóðunnu eina lagið sem er…Lesa meira


Fastlega má gera ráð fyrir að fréttir veki mismikinn áhuga eins og gengur. Fréttamat hvers og eins byggir jú á persónulegum áhuga eða hagsmunum gagnvart viðfangsefninu og snerta okkur því misjafnlega. Það er auðvelt að nefna dæmi. Þeim sem fylgjast með fótbolta finnst vafalítið spennandi að lesa frétt á forsíðu Skessuhorns vikunnar um það hvernig…Lesa meira