Íþróttir

true

Jöfnuðu á lokamínútunum

ÍA og Fjölnir gerðu 1-1 jafntefli þegar liðin mættust í 11. umferð Inkasso deildar kvenna í knattspyrnu. Leikið var á Akranesi í gærkvöldi Skagakonur hafa átt erfitt uppdráttar að undanförnu og höfðu tapað fimm deildarleikjum í röð fyrir leikinn. Gengi Fjölnis hefur verið upp og ofan á tímabilinu. Bæði lið eru í baráttunni í neðri…Lesa meira

true

Árnína og Arna áfram hjá Skallagrími

Meistaraflokkur kvenna í körfuknattleik hjá Skallagrími hefur endurnýjað samninga sína við þær Árnínu Lenu Rúnarsdóttur og Örnu Hrönn Ámundadóttur. Munu þær spila með liðinu í Domino‘s deildinni á komandi tímabili. Árnína kom frá Njarðvík fyrir síðasta tímabil og var hún fastamaður í liðinu með 4,6 stig að meðaltali í leik. Hún er 25 ára og…Lesa meira

true

Landsliðið í bridds heiðrað

Íslenska fagnaði Norðurlandameistaratitli í bridds fyrr í sumar eftir sigur á Dönum í hreinum úrslitaleik á Norðurlandamótinu í Kristiansand. Af því tilefni var landsliðið heiðrað í ráðherrabústaðnum. Liðið hefur átt góðu gengi að fagna undanfarin ár, en það varð einnig Norðurlandameistari árið 2013 og 2015. „Ég óska liðinu hjartanlega til hamingju með þennan glæsilega árangur.…Lesa meira

true

Króatískur markvörður til ÍA

Knattspyrnufélag ÍA hefur samið við króatíska markvörðinn Dino Hodzic um að leika með liði Skagamanna út sumarið. Hann er fæddur árið 1995 og kemur til ÍA frá liðinu Mezökövesd í Ungverjalandi. Hann hefur áður á sínum ferli m.a. spilað með Vejle og Fredericia í Danmörku. Dino þykir efnilegur markvörður og er hugsaður sem varamarkvörður til…Lesa meira

true

Sigruðu á ReyCup

Lið ÍA/Skallagríms í 3. flokki kvenna fagnaði sigri á alþjóðlega knattspyrnumótinu ReyCup sem lauk í gær. Vesturlandsliðið lék gegn norska liðin Gjelleråsen IF í úrslitaleiknum sem leikinn var á Laugardalsvelli. Þær norsku voru ósigraðar fyrir lokaleik mótsins og náðu forystunni í úrslitaleiknum. Það var síðan Lilja Björg Ólafsdóttir sem jafnaði metin þegar hún gerði sér…Lesa meira

true

Kári tapaði gegn Völsungi

Káramenn riðu ekki feitum hesti frá viðureign sinni gegn Völsungi þegar liðin mættust í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn. Leikið var á Húsavík og það voru heimamenn sem höfðu sigur, 3-0. Völsungur komst yfir á 23. mínútu með marki frá Bjarka Baldvinssyni. Káramenn fengu vítaspyrnu á 30. mínútu og kjörið tækifæri til að…Lesa meira

true

Sölvi og Viktor teknir við Skallagrími

Kristinn Guðbrandsson er hættur sem þjálfari meistaraflokks Skallagríms í fótbolta. Þeir Viktor Már Jónasson og Sölvi G. Gylfason hafa tekið við sem nýtt þjálfarateymi liðsins og munu stýra liðinu það sem eftir er af tímabilinu. Viktor Már hefur verið leikmaður liðisins á tímabilinu en færir sig nú í þjálfarahlutverkið. Sölvi er fyrrum leikmaður Skallagríms og…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu í hörkuleik

ÍA og Valur mættust í hörkuleik í 14. umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið var á Akranesi og lauk leiknum með sigri Valsmanna, 1-2. Gestirnir voru öflugri í upphafi leiks og komust yfir á 16. mínútu eftir mistök Skagamanna. Arnór Snær Guðmundsson steig ofan á boltann og Kristinn Freyr Sigurðsson komst…Lesa meira

true

Tap í Kaplakrikanum

Skagakonur fóru fýluferð í Hafnarfjörðinn í gær þegar þær töpuðu með einu marki gegn þremur á móti toppliði FH í tíundu umferð 1. deildar kvenna. Mikið rú og stú hefur verið í kringum ÍA liðið síðustu vikur. Fyrst þurfti Bandaríski markvörðurinn, Tori Ornela, frá að hverfa og í kjölfarið óskaði þjálfarateymið, Helena Ólafsdóttir og Aníta…Lesa meira

true

Súrt tap hjá Skallagrími

Skallagrímsmenn þurftu að sætta sig við tap gegn Augnabliki þegar liðin mættust á Skallagrímsvelli í Borgarnesi í 14. umferð 3. deildar karla í gærkvöldi. Gestirnir mættu ákveðnari til leiks og sóttu hart að heimamönnum á upphafsmínútunum. Stefán Ingi Sigurðarson kom Augnabliki yfir á 19. mínútu eftir góða sókn. Skallagrímsmenn sýndu þó engin merki þess að…Lesa meira