Íþróttir

true

Boltinn vildi ekki í netið

Víkingur Ó. og Þróttur R. gerðu markalaust jafntefli þegar liðin mættust í 14. umferð Inkasso deildar karla í knattspyrnu. Leikið var í Ólafsvík í gærkvöldi. Heimamenn voru öflugri í fyrri hálfleik, áttu ágætis marktilraunir en sköpuðu sér þó engin dauðafæri. Eftir hálftíma leik áttu Ólafsvíkingar langt innkast inn á teig og skot framhjá eftir at…Lesa meira

true

Aldís og Huginn sigruðu Álmanninn

Aldís Róbertsdóttir og Huginn Hilmarsson fögnuðu sigri í einstaklingskeppni í Álmanninum sem haldinn var á Akranesi á miðvikudagskvöld. Liðið Hrikalegir bar sigur úr býtum í liðakeppni. Álmaðurinn er þríþraut sem samanstendur af hjólreiðum, fjallahlaupi og sjósundi. Hjólað er frá íþróttahúsinu við Jaðarsbakka að Akrafjalli og hlaupið upp á Háahnjúk og niður aftur. Þaðan er hjólað…Lesa meira

true

Þórður Þorsteinn hættur hjá ÍA

Knattspyrnumaðurinn Þórður Þorsteinn Þórðarson hefur leikið sinn síðasta leik fyrir ÍA. Fram kemur í tilkynningu á vef KFÍA að samkomulag hafi náðst um samningslok Þórðar. „Eftir miklar vangaveltur höfum ég og Knattspyrnufélag ÍA ákveðið að nú skilji leiðir,“ er haft eftir Þórði í tilkynningunni. „Ég skil sáttur við klúbbinn minn þar sem ég hef alist…Lesa meira

true

Grátlegt tap Skagakvenna

ÍA mátti sætta sig við svekkjandi 1-2 tap gegn Tindastóli þegar liðin mættust í níundu umferð Inkasso deildar kvenna í knattspyrnu á Akranesi á föstudagskvöld. Gestirnir skoruðu tvö mörk á lokamínútunum og stálu sigrinum. Skagakonur mættu ákveðnar til leiks en það var engu að síður Tindastólsliðið sem var heilt yfir öflugra og fékk betri færi…Lesa meira

true

Dramatískt jafntefli Víkings

Víkingur Ó. og Grótta skildu jöfn, 2-2, í dramatískum leik í 13. umferð Inkasso deildar karla í knattspyrnu. Leikið var á Seltjarnarnesi á laugardaginn var. Fyrri hálfleikur var fjörugur í meira lagi, opinn og skemmtilegur. Besta færi fyrri hálfleiks fengu Ólafsvíkingar á 28. mínútu. Ívar Reynir Antonsson átti frábæra sendingu fyrir markið á Sallieu Tarawallie…Lesa meira

true

Jafnt norðan heiða

ÍA og KA skildu jöfn, 1-1, þegar liðin mættust í 13. umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu. Leikurinn fór fram á Akureyri í gærdag. Leikurinn fór fjörlega af stað og Skagamenn komust yfir strax á 10. mínútu leiksins. Stefán Teitur Þórðarson tók aukaspyrnu frá hægri, sendi boltann fyrir markið á Viktor Jónsson sem skoraði…Lesa meira

true

Markaregn og dramatík

Kári tapaði gegn Þrótti frá Vogum í dramatískum markaleik þegar liðin mættust í tólftu umferð 2. deildar karla í knattspyrnu. Leikið var í Akraneshöllinni í gærkvöldi. Eitt mark var skorað í fyrri hálfleik og þar var á ferðinni Miroslav Babic, sem kom gestunum af Suðurnesjum yfir á 21. mínútu leiksins. Hlynur Sævar Jónsson jafnaði metin…Lesa meira

true

Öflugri allan leikinn

Víkingur Ó. sigraði Hauka 2-0 þegar liðin mættust í tólftu umferð Inkasso deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið var á Ólafsvíkurvelli og það voru heimamenn sem voru sterkari allan leikinn. Ólafsvíkingar mættu ákveðnir til leiks, áttu fín færi í upphafi og komust yfir á 13. mínútu. Vidmar Miha skaut að marki utan teigs. Skoti…Lesa meira

true

Helena og Aníta hættar hjá ÍA

Þær Helena Ólafsdóttir, þjálfari kvennaliðs ÍA og Aníta Lísa Svansdóttir aðstoðarþjálfari hafa óskað eftir því að láta af störfum hjá félaginu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu á vef Knattspyrnufélags ÍA. Helena og Aníta tóku við þjálfun ÍA haustið 2016 og hafa því verið við stjórnvölinn hjá meistaraflokki kvenna í tæp þrjú ár. „Knattspyrnufélag ÍA óskar…Lesa meira

true

Inn vildi boltinn ekki

Skagakonur máttu sætta sig við 0-1 tap gegn Augnabliki þegar liðin mættust í áttundu umferð Inkasso deildar kvenna í knattspyrnu. Leikið var á Akranesi í gærkvöldi. Gestirnir úr Kópavogi voru betri í fyrri hálfleik og skoruðu eina mark leiksins á 19. mínútu. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir tók sprett upp vinstri kantinn, sendi á fjærstöng þar sem…Lesa meira