Íþróttir

true

Bikarmeistararnir fengu skell

Nýkrýndum bikarmeisturum Skallagríms var kippt rækilega niður á jörðina í gærkvöldi, þegar liðið steinlá gegn Val á útivelli, 107-41. Keira Robinson, Emilie Hesseldal og Maja Michalska léku ekki með Skallagrími í leiknum vegna veikinda, en þær hafa verið lykilmenn í liði Borgnesinga í vetur. Hafði það sitt að segja en tapið var engu að síður…Lesa meira

true

Borgnesingar sigruðu í Vesturlandsslagnum

Skallagrímur vann góðan sigur á Snæfelli, 74-71, þegar liðin mættust í spennandi Vesturlandsslag í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkveldi. Leikið var í Stykkishólmi. Hólmarar höfðu undirtökin í upphafi og skoruðu fyrstu sjö stig leiksins. Eftir það tóku Borgnesingar góða rispu og komust í 13-15 seint í fyrsta leikhluta. En Snæfell átti lokaorðið í…Lesa meira

true

Tvö ný Akranesmet og fjöldi verðlauna

Tvö Akranesmet í sundi féllu á Gullmóti KR sem haldið var í Laugardalslaug um helgina. Sundfélag Akraness sendi 31 sundmann til keppni. Þátttaka í mótinu var mjög góð þar sem yfir 490 keppendur af landinu öllu tóku þátt. Enrique Snær Llorens setti nýtt Akranesmet í 200 m skriðsundi í flokki fullorðinna, en hann synti á…Lesa meira

true

Samið við meistaraflokk

Mánudaginn 10. febrúar síðastliðinn var í fyrsta skipti í sögu Fimleikafélags Akraness undirritaður samningur við iðkendur meistaraflokks félagsins, en um er að ræða iðkendur 18 ára og eldri. Í þeim hópi eru þær Aþena Ósk Eiríksdóttir, Harpa Rós Bjarkadóttir, Marín Birta Sveinbjörnsdóttir, Sóley Brynjarsdóttir, Sylvía Mist Bjarnadóttir, Valdís Eva Ingadóttir og Ylfa Claxton. Það voru…Lesa meira

true

Skallagrímskonur eru bikarmeistarar

Geysisbikar kvenna verður í Borgarnesi næsta árið hið minnsta, eftir magnaðan sigur Skallagrímskvenna á KR í úrslitaleiknum sem lauk nú í kvöld, 66-49. Skallagrímur er því bikarmeistari í körfuknattleik í fyrsta skipti og er þetta fyrsti stóri titill félagsins frá því Borgnesingar urðu Íslandsmeistarar kvenna árið 1964. Vörnin vinnur titla Grunninn að sigrinum lögðu Skallagrímskonur…Lesa meira

true

Bikarinn á leiðinni í Borgarnes!

Kvennalið Skallagríms var rétt í þessu að landa sigri í úrslitaleik Geysisbikarsins í körfubolta 2020. Báru stelpurnar sigurorð af KR með stigatölunni 66-49. Leikurinn var í járnum í fyrri hálfleik, en í upphafi þess síðari sigldu Borgnesingar framúr og litu aldrei til baka, sömuleiðis sá KR liðið ekki til sólar. Bikarinn er því á leið…Lesa meira

true

Bikarúrslitin bíða Skallagríms

Skallagrímskonur mæta KR í úrslitaleik Geysisbikarsins á morgun, eftir frækinn sigur á Haukum, 86-79, í undanúrslitum bikarsins í gærkvöldi. Skallagrímskonur mættu ákveðnar til leiks í Laugardalshöllinni og voru mun sterkara lið vallarins í upphafsfjórðungnum. Keira Robinson fór þar fremst í flokki, en hún skoraði 15 af 27 stigum Skallagríms í fyrsta leikhluta. Borgnesingar léku afar…Lesa meira

true

Skallagrímur mætir KR í úrslitaleik Geysisbikars kvenna

Kvennalið Skallagríms var rétt í þessu að sigra Hauka í undanúrslitum Geysisbikars kvenna. Leikurinn fór 86-79 fyrir Borgnesinga sem leiddu allan leikinn, byrjuðu af krafti og létu forystuna aldrei af hendi. Keira Robinson átti stórleik fyrir Skallagrím, skoraði rúmlega helming stiga liðsins, eða 44. Í fyrri undanúrslitaleiknum bar KR sigurorð af Val. Úrslitaleikur Geysisbikarsins, þar…Lesa meira

true

Bikarslagur á morgun

Skallagrímskonur mæta Haukum í undanúrslitum Geysisbikars kvenna í körfuknattleik á morgun, fimmtudaginn 13. febrúar. Leikið verður í Laugardalshöllinni og hefst leikurinn kl. 20:15. Báðir undanúrslitaleikirnir fara fram sama kvöld, og er viðureign Skallagríms og Hauka sú síðari af tveimur. Í hinni fyrri mætast KR og Valur. Sigurvegararnir úr undanúrslitaviðureignunum mætast síðan í bikarúrslitaleiknum í Laugardalshöll…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu

ÍA og Fjölnir B áttust við í 2. deild karla í körfuknattleik á laugardaginn. Leikið var í Dalhúsum í Grafarvogi. Ekki munaði miklu á liðunum þegar öll kurl voru komin til grafar, því tíu stig skildu liðin að í leikslok. Fjölnismenn sigruðu með sléttum 100 stigum gegn 90 stigum Skagamanna. ÍA situr eftir leikinn í…Lesa meira