Íþróttir

true

Tap á Selfossi

Snæfellingar riðu ekki feitum hesti frá viðureign sinni við Selfyssinga þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Selfyssingar, sem léku á heimavelli, höfðu yfirhöndina allan tímann og sigruðu að lokum örugglega, 96-77. Heimamenn voru öflugri í upphafi leiks og leiddu með tólf stigum eftir fyrsta leikhlutann, 90-18. Þeir juku forskot sitt…Lesa meira

true

Gestirnir sterkari í síðari hálfleik

Skallagrímsmenn máttu játa sig sigraða gegn toppliði Breiðabliks þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Eftir jafnan leik framan af tóku Blikar að síga fram úr í síðari hálfleik og sigruðu að lokum með 14 stigum, 80-94. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafsfjórðungnum þar sem þau fylgdust að nær allan…Lesa meira

true

Mættu ofjörlum sínum

Snæfellskonur mættu ofjörlum sínum þegar þær fengu KR í heimsókn í Stykkishólm á laugardaginn. Gestirnir réðu ferðinni frá fyrstu mínútu og sigruðu að lokum örugglega, 56-83. Snæfellskonur áttu afleitan upphafsfjórðung, þar sem þær skoruðu að eins fimm stig gegn 26 stigum KR-inga. Annað var uppi á teningnum í öðrum leikhluta, þar sem jafnt var á…Lesa meira

true

Endurkomusigur Skallagríms

Skallagrímskonur unnu sterkan endurkomusigur á Breiðabliki, 75-73, þegar liðin mættust í Dominos‘ deild kvenna í Borgarnesi á laugardaginn. Blikakonur voru öflugri í upphafsfjórðungnum. Þegar langt var liðið á hann leiddu þær 8-22, en Skallagrímskonur minnkuðu muninn í sjö stig áður en leikhlutinn var úti, 17-24. Þær voru sterkara liðið í öðrum leikhluta og færðust stöðugt…Lesa meira

true

Klifruðu á verðlaunapall

Fyrsta mót Íslandsmeistaramótaraðarinnar í grjótglímu fór fram í Klifurhúsinu í Reykjavík á laugardaginn. Klifurfélag ÍA sendi stóran hóp til keppni í C og B flokki auk þriggja klifrara í fullorðinsflokki. Sverrir Elí Guðnason landaði bronsverðlaunum í C flokki og í B flokki vann Sylvía Þórðardóttir til silfurverðlauna. Brimrún Eir Óðinsdóttir hreppti silfrið í Junior-flokki og…Lesa meira

true

Misstu dampinn í seinni hálfleik

Snæfellskonur biðu lægri hlut gegn Haukum þegar liðin mættust í Stykkishólmi í gærkvöldi. Eftir frekar spennandi fyrri hálfleik náðu gestirnir undirtökunum í þeim síðari og sigruðu að lokum örugglega, 62-84. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en um miðjan fyrsta leikhlutann náðu Haukar yfirhöndinni. Snæfellskonum gekk illa að skora stig og voru tólf stigum…Lesa meira

true

Sterkur sigur Skallagríms

Baráttan um sæti í úrslitakeppni kvenna í körfuknattleik er í algleymingi eftir að Skallagrímur lagði Keflavík, 83-73 í Borgarnesi í gær. Skallagrímskonur byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru mun öflugri í upphafsfjórðungnum. Þær komust snemma leiks í 12-3 og leiddu með tólf stigum eftir fyrsta leikhluta, 27-15. Skallagrímskonur voru áfram sterkari í öðrum leikhluta…Lesa meira

true

Töpuðu á endasprettinum

Skallagrímur sat eftir með sárt ennið að loknum spennandi leik í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Borgnesingar mættu þá liði Álftnesinga í Forsetahöllinni á Álftanesi. Eftir jafnan og spennandi leik náðu heimamenn yfirhöndinni á lokamínútunum og sigruðu að endingu með 14 stigum, 97-83. Borgnesingar voru heldur sterkari í upphafi leiks en Álftnesingar fylgdu…Lesa meira

true

Töpuðu gegn Vestra

Snæfellingar töpuðu eftir hörkuleik gegn sterku liði Vestra, 87-97 þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Stykkishólmi. Hólmarar voru sterkari framan af fyrri hálfleik og leiddu með átta stigum eftir fyrsta leikhluta, 23-15. Vestramenn sneru taflinu sér í vil í öðrum leikhluta og voru sjö stigum yfir í…Lesa meira

true

Mikilvægur sigur ÍA

ÍA vann mikilvægan sigur á Ármanni í botnbaráttu 2. deildar karla í körfuknattleik þegar liðin mættust á Akranesi á laugardag. Eftir jafnan fyrri hálfleik voru Skagamenn sterkari í þeim síðari og sigruðu að lokum með 14 stigum, 102-88. Chaz Franklin var mættur aftur til leiks með ÍA eftir að hafa tekið út leikbann í síðasta…Lesa meira