
Skallagrímskonur unnu sterkan endurkomusigur á Breiðabliki, 75-73, þegar liðin mættust í Dominos‘ deild kvenna í Borgarnesi á laugardaginn. Blikakonur voru öflugri í upphafsfjórðungnum. Þegar langt var liðið á hann leiddu þær 8-22, en Skallagrímskonur minnkuðu muninn í sjö stig áður en leikhlutinn var úti, 17-24. Þær voru sterkara liðið í öðrum leikhluta og færðust stöðugt…Lesa meira








