Íþróttir

true

Töpuðu á endasprettinum

Skallagrímur sat eftir með sárt ennið að loknum spennandi leik í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Borgnesingar mættu þá liði Álftnesinga í Forsetahöllinni á Álftanesi. Eftir jafnan og spennandi leik náðu heimamenn yfirhöndinni á lokamínútunum og sigruðu að endingu með 14 stigum, 97-83. Borgnesingar voru heldur sterkari í upphafi leiks en Álftnesingar fylgdu…Lesa meira

true

Töpuðu gegn Vestra

Snæfellingar töpuðu eftir hörkuleik gegn sterku liði Vestra, 87-97 þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Stykkishólmi. Hólmarar voru sterkari framan af fyrri hálfleik og leiddu með átta stigum eftir fyrsta leikhluta, 23-15. Vestramenn sneru taflinu sér í vil í öðrum leikhluta og voru sjö stigum yfir í…Lesa meira

true

Mikilvægur sigur ÍA

ÍA vann mikilvægan sigur á Ármanni í botnbaráttu 2. deildar karla í körfuknattleik þegar liðin mættust á Akranesi á laugardag. Eftir jafnan fyrri hálfleik voru Skagamenn sterkari í þeim síðari og sigruðu að lokum með 14 stigum, 102-88. Chaz Franklin var mættur aftur til leiks með ÍA eftir að hafa tekið út leikbann í síðasta…Lesa meira

true

Borgnesingar á botninn

Skallagrímur tapaði gegn Sindra, 91-73, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudaginn. Leikið var á Höfn í Hornafirði. Fyrir leikinn sátu heimamenn í neðsta sæti deildarinnar en Borgnesingar þar fyrir ofan. Sigur Sindramanna gerði það hins vegar að verkum að nú eru það Borgnesingar sem verma botnsætið. Skallagrímsmenn byrjuðu leikinn betur…Lesa meira

true

Ingvar í öðru sæti á Íslandsmeistaramóti

Ingvar Svavarsson frá Crossfit Ægi á Akranesi keppti á Íslandsmeistaramótinu í Crossfit sem haldið var um helgina. Ingvar hafnaði þar í öðru sæti í flokki 35-39 ára með 580 stig, 35 stigum minna en Stefáni Helga Einarsson sem hreppti gullið, en Stefán varð í 6. sæti í flokki 35-39 ára á Heimsleikunum á síðasta ári.Lesa meira

true

Skagamenn sigruðu Fótbolta.net mótið

ÍA sigraði Fotbolta.net mótið í knattspyrnu með öruggum sigri á Breiðabliki, 2-5, í úrslitaleik mótsins sem fram fór á í gær. Leikið var á Kópavogsvelli. Tryggvi Hrafn Haraldsson átti stórleik í liði Skagamanna og skoraði þrennu. Tryggvi skoraði fyrsta markið eftir aðeins korters leik þegar hann lyfti boltanum laglega yfir markvörð Blika eftir stungusendingu frá…Lesa meira

true

Naumt tap í spennandi leik

Skallagrímskonur töpuðu naumlega íspennandi leik gegn KR á heimavelli, 72-77, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Borgnesingar höfðu yfirhöndina í fyrri hálfleik, en gestirnir úr Vesturbæ Reykjavíkur voru heldur sterkari í þeim síðari og höfðu sigur eftir æsispennandi lokafjórðung. Skallagrímskonur byrjuðu leikinn betur. Þær höfðu örfárra stiga forskot lengi framan…Lesa meira

true

Snæfellskonur stálu sigrinum

Snæfellskonur gerðu góða ferð suður með sjó í gærkvöldi, þegar þær lögðu lið Grindavíkur í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Grindvíkingar höfðu yfirhöndina nær allan leikinn en með mikilli baráttu tókst Snæfellskonum að halda sér inni í leiknum allan tímann. Undir lokin tókst þeim að komast yfir í aðeins annað sinn í leiknum og stela…Lesa meira

true

Enrique Snær hreppti silfrið

Keppt var í sundi á Reykjavíkurleikunum um síðustu helgi. Alls tóku 315 keppendur þátt í mótinu, þar af 115 erlendir. Sundfélag Akraness átti níu keppendur á Reykjavíkurleikunum að þessu sinni. Bestum árangri þeirra náði Enrique Snær Llorens sem hreppti silfurverðlaun í 200 metra flugsundi. Brynhildur Traustadóttir synti til úrslita í 200 m skriðsundi og Guðbjörg…Lesa meira

true

Kristín þriðja á Reykjavíkurleikunum

Kristín Þórhallsdóttir úr Kraftlyftingafélagi Akraness hafnaði í þriðja sæti í kvennaflokki í klassískum kraftlyftingum á Reykjavíkurleikunum 2020. Hún lyfti 170 kg í hnébeygju, 87,5 kg í bekkpressu og 180 kg í réttstöðulyftu. Samanlagður árangur var því 437,5 kg sem skilaði henni 677,4 IPF stigum. Varð hún hlutskörpust í 84 kg flokki og þriðja í heildarstigakeppninni.…Lesa meira