
Skallagrímskonur máttu játa sig sigraðar gegn Haukum, 59-72, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Borgarnesi. Leikurinn fór hægt af stað og engin stig voru skoruð fyrstu þrjár mínúturnar, eða þar til gestirnir úr Hafnarfirði komust á blað. Skallagrímskonur fundu sig hins vegar engan veginn í fyrsta leikhluta.…Lesa meira








