
Meistaramót BH í badminton var haldið í Hafnarfirði um síðustu helgi. Badmintonfélag Akraness sendi sjö keppendur á mótið sem allir stóðu sig með stakri prýði, eins og segir frá á Facebook-síðu félagsins. Brynjar Már Ellertsson varð þrefaldur meistari í A flokki. Hann sigraði í einliðaleik, tvíliðaleik með Pontusi Rydström og í tvenndarleik ásamt Brynju K.…Lesa meira








