
Snæfellingar mættu Selfyssingum á útivelli í 1. deild karla í körfuknattleik á laugardag. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik datt botninn algerlega úr leik Snæfells í þeim síðari og þeir töpuðu að lokum stórt, 96-51. Snæfellingar byrjuðu betur, skoruðu fyrstu fimm stig leiksins, höfðu undirtökin lengst framan af fyrsta leikhluta og leiddu að honum loknum, 17-18.…Lesa meira








