
Knattspyrnumaðurinn Arnór Sigurðsson frá Akranesi gekk í dag í raðir rússneska stórveldisins CSKA Moskva frá sænska liðinu IFK Norrköping. Kaupverðið er talið vera um fjórar milljónir evra, sem samsvarar um það bil 500 milljónum íslenskra króna. Samningaviðræður hafa staðið yfir í tvær vikur, eða allt frá 16. ágúst þegar rússneska liðið gerði fyrst tilboð í…Lesa meira







