Íþróttir

true

Bjarki á lista bestu kylfinga bandarísku háskóladeildarinnar

Bjarki Pétursson, kylfingur úr Golfklúbbi Borgarness, hefur leikið gríðarlega vel það sem af er ári með háskólaliði sínu Kent State í Bandaríkjunum. Sömu sögu er að segja af liðsfélaga hans, Gísla Sveinbergssyni úr Keili. Lið þeirra hefur unnið þrjú mót það sem af er tímabili, þar af tvö af síðustu þremur. Þeir hafa aldrei lent…Lesa meira

true

Valdís Þóra glímdi við meiðsli í Frakklandi

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Terre Blanche mótinu sem fram fór í París um helgina. Valdís glímdi við axlarmeiðsli sem gerðu henni erfitt fyrir í mótinu. Varð hún að láta af undirbúningi eftir fyrstu níu holur æfingahringsins miðvikudaginn fyrir mótið og hvíla öxlina á fimmtudag, daginn fyrir…Lesa meira

true

Keflavík jafnaði metin í Borgarnesi

Skallagrímur og Keflavík áttust við í undanúrslitum úrslitakeppni kvenna í körfuknattleik í gær. Leikið var í Borgarnesi. Skallagrímur leiddi einvígið með einum sigri gegn engum en Keflavík jafnaði metin í gær í miklum baráttuleik. Liðin hafa því unnið sinn útileikinn hvort og staðan er jöfn, 1-1. Varnarleikur var aðalsmerki beggja liða í gær og leikurinn…Lesa meira

true

Snæfell sigraði örugglega

Snæfell heimsótti Stjörnuna þegar liðin mættust öðru sinni í undanúrslitaviðureign úrslitakeppni kvenna á laugardag. Skemmst er frá því að segja að Snæfellskonur sigruðu örugglega, 70-86 eftir að hafa haft yfirhöndina allan leikinn. Þær leið einvígið með tveimur sigrum gegn engum og eru komnar í vænlega stöðu fyrir þriðja leik liðanna sem fram fer í Stykkishólmi…Lesa meira

true

Siguroddur sigurvegari í einstaklingskeppni en Skáney/Leiknir í keppni liða

Síðastliðið föstudagskvöld fór fram lokakeppni í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum í vetur þegar keppt var í flugaskeiði í gegnum höllina. Í keppni föstudagsins var það Konráð Valur Sveinsson frá Laugarvöllum sem sigraði næsta örugglega á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu. Tíminn var 4,89 sek. Í öðru sæti varð Styrmir Sæmundsson á Skjóna frá Stapa á tímanum 5,26 sek.…Lesa meira

true

Á verðlaunapall á Norðurlandamóti í hnefaleikum

Hnefaleikasamband Íslands sendi 17 manna landsliðshóp á Norðurlandamótið í Ólympískum hnefaleikum sem haldið var í Gilleleje í Danmörku helgina 31. mars – 2 apríl. Skagamennirnir Bjarni Þór Benediktsson keppandi í 64kg flokki ungmenna og Örnólfur Stefán Þorleifsson þjálfari voru meðal þátttakenda. Bjarni Þór lenti á móti mjög sterkum andstæðingi frá Svíþjóð. Sá er margfaldur Svíameistari…Lesa meira

true

ÍA semur við enskan miðjumann

Knattspyrnufélag ÍA hefur fengið til liðs við sig Rashid Yussuf frá pólska úrvalsdeildarliðinu Arka Gdynia og mun hann leika með liði Skagamanna í Pepsi deildinni í sumar. Rashid er 26 ára gamall Englendingur. Hann er örvfættur miðjumaður sem getur jafnframt leyst stöðu vinstri bakvarðar og vinstri kantmanns. „Hann kom á reynslu í síðustu viku og…Lesa meira

true

Valdís Þóra leikur í Frakklandi í dag

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, hefur leik á Terra Blanche Ladies Open mótinu í dag. Mótið er í Frakklandi og er hluti af LET Access mótaröðinni, sem er næststerkasta atvinnumótaröð Evrópu á eftir LET mótaröðinni. Hún hefur undanfarið verið við æfingar á Spáni og mun nýta mótið sem hefst í dag til að…Lesa meira

true

Skallagrímur stal heimaleikjaréttinum

Skallagrímur hafði sigur gegn Keflavík í fyrsta leik liðanna í undanúrslitaviðureigninni um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Keflavík í gærkvöldi. Eftir nokkuð jafnan leik sem heimakonur leiddu naumlega komust Skallagrímskonur yfir í lokafjórðungnum og stálu sigrinum eftir æsispennandi lokamínútur. Lokatölur urðu 68-70, Skallagrími í vil.   Gangur leiksins Keflvíkingar höfðu heldur yfirhöndina í…Lesa meira

true

Snæfellskonur komnar með yfirhöndina

Snæfell bar sigurorð af Stjörnunni í gær í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum Dominos deildar kvenna í körfubolta. Lokatölur leiksins urðu 93-78 sem fram fór í Stykkishólmi og leiddu Snæfellskonur allan leikinn. Atkvæðamest Snæfellskvenna í leiknum var Aaryn Ellenberg sem átti stórleik. Hún skoraði 42 stig, hirti 14 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Næstar komu…Lesa meira