Íþróttir

true

Birta hélt hreinu í sigri gegn Svíum

U17 ára landslið kvenna í knattspyrnu er þessa dagana statt í Portúgal þar sem leikinn verður milliriðill fyrir EM 2017 sem fara mun fram í Tékklandi í maí. Rétt í þessu lauk fyrsta leik liðsins í milliriðlinum, en Ísland bar sigurorð af Svíum með einu marki gegn engu. Birta Guðlaugsdóttir, markvörður Víkings Ó. var í…Lesa meira

true

Aaryn best í seinni hlutanum

Í gærkvöldi voru veitt verðlaun fyrir seinni hluta Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Tvö efstu lið deildarinnar, Snæfell og Keflavík, hrepptu öll einstaklingsverðlaunin. Aaryn Ellenberg var valin besti leikmaðurinn og Ingi Þór Steinþórsson besti þjálfarinn. Aaryn var að sjálfsögðu einnig valin í úrvalslið síðari hluta tímabilsins ásamt liðsfélaga sínum Berglindi Gunnarsdóttur, Sigrúnu Sjöfn Ámundadóttur úr Skallagrími…Lesa meira

true

Kraftlyftingakappar af Akranesi sigursælir um helgina

Íslandsmeistaramótið í klassískum kraftlyftingum fór fram í Reykjavík á laugardaginn var. Samhliða fór fram Íslandsmeistaramót ungmenna og öldunga, einnig í klassískum lyftingum. Sex lyftingakappar frá Kraftlyftingafélagi Akraness tóku þátt í mótunum. Skemmst er frá því að segja að kraftlyftingafólk af Akranesi sneri heim með fimm Íslandsmeistaratitla og ein bronsverðlaun.   Þrjú Íslandsmet Einars Á Íslandsmeistarmótinu…Lesa meira

true

Arnór Sigurðsson til IFK Norrköping

Sænska úrvalsdeildarliðið IFK Norrköping hefur keypt Skagamanninn Arnór Sigurðsson frá ÍA. Arnóri var boðið til reynslu hjá sænska liðinu síðasta haust auk þess sem hann fór í æfingabúðir liðsins í Portúgal í byrjun þessa árs. Nú hefur IFK Norrköping keypt Arnór, sem skrifaði undir fjögurra ára samning við liðið. „Við erum gríðarlega ánægðir fyrir Arnórs…Lesa meira

true

Glímukrökkum gekk vel á grunnskólamóti

Grunnskólamót Glímusambandsins var haldið í Ármannsheimilinu í Reykjavík laugardaginn 18. mars. Glímt var á tveimur völlum samtímis og gekk keppnin vel fyrir sig. Krakkarnir skemmtu sér vel og var almenn ánægja með mótið. Keppendur frá Vesturlandi komu frá tveimur skólum í landshlutanum; Auðarskóla í Búðardal og Lýsuhólsskóla á Snæfellsnesi. Jóhanna Vigdís Pálmadóttir úr Auðarskóla varð…Lesa meira

true

Valdir bútar úr Fjallvegabók Stefáns Gíslasonar

Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur og hlaupagikkur, fagnaði sextugsafmæli sínu síðstliðinn laugardag. m.a. með því að halda útgáfuhóf og kynna nýja bók sína; Fjallvegahlaup. Í henni eru frásagnir af fimmtíu fjallvegahlaupum sem Stefán hefur farið á liðnum áratug.  Í Skessuhorni vikunnar er finna valda textabúta úr Fjallvegabókinni. Stefán valdi þessa texta af nokkru handahófi, en þeir eiga það…Lesa meira

true

Reiðskemman í Stykkishólmi vígð

Ný reiðskemma var vígð í Stykkishólmi við hátíðlega athöfn á laugardaginnnadin. Skessuhorn greindi frá því þegar framkvæmdir hófust við skemmuna en fyrsta skóflustungan var tekinn í byrjun júní á síðasta ári og hafa byggingaframkvæmdir gengið að óskum, að sögn Nadine Elisabeth Walter formanns Hesteigendafélags Stykkishólms. Notagildi skemmunar hefur nú þegar sýnt sig en þar hefur…Lesa meira

true

Tap hjá Skallagrími í lokaleiknum

Skallagrímur laut í lægra haldi gegn Val þegar liðin mættust í lokaleik Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var á Hlíðarenda í Reykjavík. Leikurinn skipti engu máli upp á stöðu liðanna í deildinni en var engu að síður jafn og spennandi framan af. Valskonur voru hins vegar sterkari í síðari hálfleik og sigruðu…Lesa meira

true

Bikarinn á loft eftir bragðdaufan leik

  Snæfellskonur hófu deildarmeistarabikarinn á loft eftir lokaleik deildarinnar gegn Keflavík sem fram fór í Stykkishólmi í gær. Gestirnir sigruðu reyndar leikinn, 59-72 og jöfnuðu þar með Snæfell að stigum. Þetta var hins vegar eini leikur liðanna í vetur sem Keflavík sigraði, Snæfell vann hina þrjá og hafði því tryggt sér deildarmeistaratitilinn fyrir leikinn í…Lesa meira

true

Deildarbikar á loft í Stykkishólmi

Stúlkurnar í Snæfelli fengu í gærkvöldi afhentan deildarmeistarabikar eftir að lokaumferð deildarinnar lauk, þar sem Snæfell tók á móti Keflavík. Það var Guðbjörg Norðfjörð varaformaður KKÍ sem afhenti bikarinn Gunnhildi Gunnarsdóttur fyrirliða Snæfells. Eilítið skyggði á gleðina að Snæfell tapaði viðureign sinni við Keflavík með 59 stigum gegn 72. Snæfell mætir Stjörnunni í undanúrslitum úrslitakeppninnar,…Lesa meira