Íþróttir

true

ÍA mætir Víkingi R. – Frítt á völlinn

ÍA mætir Víkingi R. í Pepsi deild karla í knattspyrnu í kvöld. ÍA vermir í augnablikinu botnsæti deildarinnar með átta stig en getur með sigri í kvöld lyft sér upp í 8. sætið og þar með úr fallsæti. Gestirnir eru í 5. sæti og hafa verið á góðum skriði undanfarnar vikur. Leikurinn hefst kl. 20…Lesa meira

true

Björn Bergmann að gera góða hluti í Noregi

Skagamaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson hefur leikið frábærlega það sem af er tímabili með liði sínu Molde í Noregi. Nú er fyrri umferð mótsins lokið ytra og er Molde sem stendur í þriðja sæti með 27 stig en Rosenborg er í efsta sæti með 32 stig. Björn Bergmann hefur verið duglegur að skora og er næstmarkahæsti…Lesa meira

true

Bryndís mun ekki spila með Snæfelli í vetur

Landsliðskonan Bryndís Guðmundsdóttir, sem undanfarin ár hefur leikið með Snæfelli í meistaraflokki kvenna í körfu, mun ekki spila með liðinu í vetur þar sem hún á von á barni í janúar. Karfan.is greinir frá. „Ég kem ekki til með að spila í það minnsta á komandi tímabili þar sem ég er ólétt,“ segir Bryndís í…Lesa meira

true

Víkingar unnu frækinn sigur á FH

Víkingur Ó. vann frækinn sigur á Íslandsmeisturum FH þegar liðin mættust í Kaplakrika í Hafnarfirði á föstudagskvöld. Nokkuð jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en leikurinn nokkuð bragðdaufur. Hvorugu liðinu tókst að skapa sér ákjósanleg marktækifæri og fyrir vikið var markalaust þegar flautað var til hálfleiks. En það átti eftir að breytast. Síðari hálfleikur…Lesa meira

true

Víkingur mætir Íslandsmeisturunum í kvöld

Í kvöld fer fram leikur FH og Víkings Ólafsvíkur í Pepsideild karla í knattspyrnu. Leikið verður á Kaplakrikavelli og er leikurinn í raun í elleftu umferð þó að um sé að ræða tíunda leik Víkings. Tíunda umferð verður spiluð á sunnudag og mánudag en er þessi leikur fyrr sökum þess að FH leikur gegn færeyska…Lesa meira

true

Valdís Þóra fyrst íslenskra kylfinga á Opna bandaríska

Valdís Þóra Jónsdóttir kylfingur Golfklúbbsins Leynis er kominn inn á Opna bandaríska mótið sem er eitt fimm risamóta í kvennagolfinu og það golfmót kvenna þar sem verðlaunafé er hæst, eða hálfur milljarður króna alls. Valdís Þóra er sem stendur á Tælandi þar sem hún var að keppa en heldur nú til Bandaríkjanna til að taka…Lesa meira

true

Covile aftur í Hólminn

Körfuknattleiksdeild Snæfells hefur samið á nýjan leik við Christian Covile og mun hann leika með liðinu í 1. deild karla á komandi vetri. Christian lék sem kunnugt er með Snæfelli síðasta vetur. Hann gekk til liðs við Hólmara eftir áramót og spilaði síðustu átta leiki tímabilsins þar sem hann skoraði 24 stig að meðaltali og…Lesa meira

true

Borgarbyggð sigraði Akranes í fyrstu púttkeppni sumarsins

Síðastliðinn fimmtudag fór fram árleg púttkeppni milli eldri borgara á Akranesi og Borgarbyggð. Viðureignin var sú fyrsta af þremur sem íbúar þessara sveitarfélaga leika sín á milli í sumar og er keppt um Húsasmiðjubikarinn. Keppt hefur verið um bikarinn síðustu fimm ár og voru keppendur að þessu sinni 44 sem er mesti fjöldi sem tekið…Lesa meira

true

Komast Skagamenn í undanúrslit í fyrsta sinn í fjórtán ár?

Skagamenn mæta fyrstudeildar liði Leiknis Reykjavík í Breiðholti klukkan 19:15 í kvöld en um er að ræða leik í átta liða úrslitum Borgunarbikarsins. Leikurinn er síðasti leikur umferðarinnar en Stjarnan, FH og ÍBV hafa öll tryggt sér sæti í undanúrslitum. Skagamenn unnu Gróttu í 16-liða úrslitum og náðu þar með sínum besta árangri í bikarkeppninni…Lesa meira

true

Draumurinn að hjóla í ísgöngunum í Langjökli

Ryder Hesjedal er einn þekktasti hjólreiðamaður heims. Meðal annars er hann sigurvegari Giro D’Italia 2012. Kappinn kom til Íslands í síðustu viku og mun verða hér á landi í rúma viku. Í ferðinni dvelur hann m.a.  á Hótel Húsafelli. Ástæðan fyrir komu hans til landsins er þátttaka í KIA Gullhringnum sem hjólaður verður frá Laugarvatni…Lesa meira