Íþróttir

true

Víkingur og ÍA mætast í Vesturlandsslag í kvöld

Í kvöld verður leikið í elleftu umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu og með því lýkur fyrri hluta Íslandsmótsins. Klukkan 18 í kvöld fer fram í Ólafsvík gríðarlega mikilvægur leikur þegar Vesturlandsliðin Víkingur og ÍA mætast. Erfiðlega hefur gengið hjá báðum liðum í deildinni og eru þau bæði í botnbaráttunni, Skagamenn í næstneðsta sæti með níu…Lesa meira

true

Góður árangur á Símamótinu

Símamótið í knattspyrnu var haldið í Kópavogi dagana 13.-16. júlí síðastliðna. Mótið er fyrir 5., 6., og 7. flokk stúlkna og er eitt stærsta knattspynumót sem haldið er á landinu á ári hverju, með um og yfir tvö þúsund þátttakendur. Ungar og upprennandi knattspyrnustúlkur úr Borgarnesi, Akranesi og af Snæfellsnesi tóku þátt og áttu góðu…Lesa meira

true

Flake verður áfram í Borgarnesi

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við reynsluboltann Darrell Flake um að spila áfram með liðinu á komandi keppnistímabili. Samhliða því að leika með liðinu verður Flake aðstoðarþjálfari, auk þess sem hann mun taka að sér þjálfun drengja- og unglingaflokks Skallagríms. Frá þessu er greint í tilkynningu á Facebook-síðu Skallagríms. Flake er körfuboltaáhugamönnum að góðu kunnur. Hann…Lesa meira

true

Valdís Þóra hefur leik í Opna bandaríska í kvöld

Í kvöld hefur Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr GL, leik á sínu fyrsta risamóti, Opna bandaríska meistaramótinu. Mótið fer fram á Trump National vellinum í Bedminster í New Jersey-fylki og allir bestu kvenkylfingar heims eru mættir til leiks. Gengið hefur verið frá rástímum fyrir mótið og mun Valdís hefja leik tíma á fyrsta teig kl.…Lesa meira

true

Bríet Lilja í Skallagrím

Bríet Lilja Sigurðardóttir hefur skrifað undir samning við Skallagrím og mun leika með liðinu í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í vetur. Bríet er 19 ára gömul og kemur frá Sauðárkróki. Hún á að baki leiki fyrir meistaraflokka Tindastól og Þór Ak., auk þess að hafa leikið með yngri landsliðum Íslands (U15, U16 og U18).…Lesa meira

true

Kristen McCarthy snýr aftur í Hólminn

Körfuknattleikskonan Kristen McCarthy, sem varð Íslandsmeistari með Snæfelli veturinn 2014-2015, mun snúa aftur í Stykkishólm og leika með Snæfelli í Domino‘s deild kvenna næsta vetur. „Það er með miklu stolti sem körfuknattleiksdeild Snæfells tilkynnir samning Kristen, sem er til eins árs,“ segir í tilkynningu á Facebook síðu félagsins. „Kristen er okkur Snæfellsfjölskyldunni vel kunnug en…Lesa meira

true

Carmen Tyson-Thomas gengur til liðs við í Skallagrím

Í vikunni sem leið bárust mikil tíðindi úr herbúðum Skallagríms sem undirbýr sig nú fyrir sitt annað tímabil í Domino‘s deild kvenna í körfu. Skallagrímur tilkynnti þá að Carmen Tyson-Thomas hafi skrifað undir samning við félagið. Carmen þarf vart að kynna fyrir þeim sem fylgjast með körfubolta á Íslandi. Hún hefur leikið síðustu tvö tímabil…Lesa meira

true

Jafntefli Skagamanna dugði ekki til að komast úr fallsæti

Á Akranesi í gær fór fram leikur Skagamanna og Víkings Reykjavík í tíundu umferð Pepsideildar karla. Skagamenn voru fyrir leikinn í neðsta sæti eftir sigur Ólafsvíkur á Íslandsmeisturum FH en Víkingur Reykjavík var í fimmta sæti. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli og léku Skagamenn fínan leik og voru óheppnir að skora ekki sigurmark undir lok…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík fær nýjan framherja

Kvennalið Víkings Ólafsvíkur hefur borist liðsstyrkur en sænski framherjinn Johanna Engberg hefur gengið til við félagið. Johanna spilaði í háskólaboltanum í Bandaríkjunum með Keiser háskólanum í Florida. Á heimasíðu umboðsskrifstofunnar PSC kemur fram að Johanna sé mjög spennt að kynnast fótboltanum og lífinu á Íslandi. „Ég hef búið og stundað nám í Bandaríkjunum í fjögur…Lesa meira