Íþróttir

true

Norðurálsmótið heppnaðist vel í ár

Um síðastliðna helgi var hið árlega Norðurálsmót á Akranesi haldið. Mótið er fyrir drengi í sjöunda flokki á aldrinum sex-átta ára. Mótið hófst rétt fyrir hádegi á föstudag með skrúðgöngu allra félagsliðanna í mótinu en fyrir göngunni fóru nemendur Tónlistarskóla Akraness. Eftir gönguna var mótið svo formlega sett í Akraneshöllinni af Sólveigu Bergmann fyrir hönd…Lesa meira

true

Íslandsmótinu í holukeppni lokið

Íslandsmótið í holukeppni, KPMG – bikarinn, fór fram í Vestmannaeyjum um síðustu helgi. Það voru 32 karlar og 16 konur sem hófu leik á föstudaginn. Ákveðið var, vegna ástands nokkurra flata vallarins, að leika einungis á 13 af 18 holum vallarins. Á fyrstu stigum mótsins réðust leikirnir á þrettán holum en í undanúrslitum sem og…Lesa meira

true

Stigasöfnun Skagamanna heldur áfram

Skagamenn hófu knattspyrnusumarið 2017 heldur illa og töpuðu fyrstu fjórum leikjunum. Þeir hafa þó verið að rétta úr kútnum að undanförnu og hafa nælt sér í átta stig í síðustu fimm leikjum. Um helgina lék ÍA í Garðabæ gegn Stjörnunni í níundu umferð Pepsideildar karla. Skagamenn nældu sér í mikilvægt stig í fallbaráttunni með 2-2…Lesa meira

true

Hallbera Guðný á leið á sitt annað stórmót

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu, var að ljúka við að kynna lokahópinn sem fer á Evrópumót kvenna í sumar. Mótið hefst 16. júlí og fyrsti leikur Íslands er 18. júlí gegn Frakklandi. Leikið verður í Hollandi og er Ísland í sterkum riðli með Austurríki, Sviss auk Frakklands. Þetta er í þriðja sinn í röð…Lesa meira

true

Fyrsti sigur Ólafsvíkurkvenna í sumar

Víkingur Ólafsvík vann sinn fyrsta sigur í fyrstu deild kvenna í knattspyrnu í sumar í síðustu viku. Leikurinn fór fram á Sauðárkróksvelli gegn Tindastóli og var í sjöttu umferð. Leikurinn fór 1-0 fyrir Víking og markið skoraði fyrirliðinn Fehima Líf Purisevic á elleftu mínútu. Víkingur er eftir leikinn í næstneðsta sæti með fjögur stig. Næsti…Lesa meira

true

Óvænt úrslit á Ólafsvíkurvelli

Í Ólafsvík í gær lék Víkingur gegn Stjörnunni í áttundu umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu. Bjuggust margir við öruggum sigri Stjörnunnar fyrir leikinn þar sem Stjarnan var í þriðja sæti með þrettán stig og Víkingur í neðsta með fjögur stig. Það bætti ekki úr skák að Víkingur hafði ekki unnið Stjörnuna í deildarleik í áratug.…Lesa meira

true

Skagamenn unnu mikilvægan sigur á Fjölni

Í gær lauk áttundu umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu. Skagamenn mættu liði Fjölnis á Akranesvelli en leikurinn var gríðarlega mikilvægur því Skagamenn voru í næstneðsta sæti með fjögur stig og Fjölnir í níunda með átta stig. Leiknum lauk með hádramatískum sigri Skagamanna þar sem rautt spjald leit dagsins ljós og úrslitin réðust í uppbótartíma. Fjölnir…Lesa meira

true

Tveir heimaleikir Vesturlandsliða í kvöld

Áttundu umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu lýkur í kvöld með fjórum leikjum. Vesturlandsliðin ÍA og Víkingur eiga bæði leik á heimavelli klukkan 19:15 í kvöld. Skagamenn eiga leik gegn Fjölni en fyrir leikinn eru Skagamenn í næstneðsta sæti með fjögur stig en Fjölnir í því níunda með átta stig. Víkingur vermir botnsætið í deildinni með…Lesa meira

true

Skallagrímur semur við bandarískan leikstjórnanda

Skallagrímur hefur gengið frá samningi við bandaríska leikstjórnandann Zac Carter fyrir keppnistímabilið 2017-2018. Zac útskrifaðist úr Walsh háskólanum í Bandaríkjunum í vor en hann var fjórði stigahæsti leikmaður í 2. deild háskólaboltans síðasta vetur. „Zac hefur verið mikill leiðtogi á velli með þeim liðum sem hann hefur spilað og eru því miklar væntingar [gerðar] til…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík fékk stig á útivelli

Í Grafarvogi í gær mættust lið Fjölnis og Víkings Ólafsvíkur í sjöundu umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu. Fyrir leikinn var Víkingur í neðsta sæti með þrjú stig og Fjölnir tíunda sæti með sjö stig. Leikurinn endaði með 1-1 jafntefli og stóðu liðin því í stað í deildinni. Leikurinn fór fjörlega af stað og eftir tólf…Lesa meira