
ÍA leikur sinn fyrsta leik í 1. deild kvenna í knattspyrnu í kvöld þegar liðið tekur á móti Tindastóli í Akraneshöllinni. Upphaflega stóð til að leikurinn færi fram á Akranesvelli en vegna slæmrar veðurspár var hann færður undir þak. Rætist hins vegar úr veðrinu getur dómari leiksins tekið ákvörðun um að færa leikinn út að nýju.…Lesa meira








