
Nú í hádeginu var dregið í átta liða úrslit Maltbikarsins, bikarkeppni KKÍ. Í pottinum í bikarkeppni kvenna voru tvö Vesturlandslið; ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar Snæfells sem báru sigurorð af Val í 16 liða úrslitum og Skallagrímur, sem sat hjá í fyrstu umferð bikarkeppninnar þennan veturinn. Bæði liðin fengu heimaleik þegar dregið var upp úr pottinum.…Lesa meira








