Íþróttir

true

Fimm Vestlendingar í landsliðshópnum

Framundan eru tveir síðustu landsleikirnir í undankeppni EM, EuroBasket kvenna 2017, hjá kvennalandsliðinu í körfuknattleik. Ívar Ásgrímsson þjálfari og Bjarni Magnússon aðstoðarþjálfari hafa valið 15 manna æfingahóp sem kemur fyrst saman þann 13. nóvember til æfinga. Af þeim eru fimm konur af Vesturlandi. Það eru systurnar Berglind og Gunnhildur Gunnarsdóttir og Pálína María Gunnlaugsdóttir frá…Lesa meira

true

Tveir ungir Skagamenn til æfinga með Norrköping

Tveir ungir og efnilegir knattspyrnumenn frá Akranesi, þeir Stefán Teitur Þórðarson og Arnór Sigurðsson, leikmenn ÍA, halda í dag út til Svíþjóðar og munu æfa í fimm daga með liði Norrköping. Stefán er fæddur árið 1998 og Arnór er árinu yngri, fæddur 1999 og báðir eru þeir því enn gjaldgengir með 2. flokki. Þrátt fyrir…Lesa meira

true

Skallagrímur vann en Snæfell tapaði í Maltbikar karla

Síðasti leikdagur fyrstu umferðar bikarkeppni KKÍ var í gær þegar leikið var í Maltbikar karla. Skallagrímur mætti 1. deildar liði Breiðabliks í Kópavoginum og vann öruggan sigur þó að aðeins hafi ellefu stig skilið liðin að þegar lokaflautan gall. Skallagrímsmenn höfðu yfirhöndina allan leikinn og þó Blikar hafi verið sprækir á köflum var sigurinn aldrei…Lesa meira

true

Einar Örn bikarmeistari og setti þrjú Íslandsmet

Bikarmótið í Kraftlyftingum fram fór síðastliðinn laugardag í Hafnarfirði. Einar Örn Guðnason úr Kraftlyftingafélagi Akraness gerði sér lítið fyrir og varð bikarmeistari í -105 kg flokki og stigahæstur karla óháð þyngdarflokkum með 524,6 Wilksstig. Einar lyfti 355 kg í hnébeygju, sem er Íslandsmet, lyfti 240,5 kg í bekkpressu sem einnig er Íslandsmet, og 280 kg…Lesa meira

true

Snæfellskonur unnu – ÍA og Grundfirðingar töpuðu

Keppni í Maltbikarnum, bikarkeppni KKÍ, hófst um liðna helgi. Vestlendingar eiga sína fulltrúa í bikarkeppninni, en sex lið úr landshlutanum taka þátt að þessu sinni. Ríkjandi bikarmeistarar Snæfells hófu titilvörn sína þegar þeir mættu Val í æsispennandi leik í Stykkishólmi í gær. Jafnt var á öllum tölum meira og minna frá fyrstu mínútu og úrslitin…Lesa meira

true

Átta Vestlendingar í U16 og U19 landliðunum

Fimm Vestlendingar hafa verið valdir til úrtaksæfinga með yngri landsliðum Íslands sem haldnar verða dagana 11. – 13. nóvember næstkomandi. Um er að ræða úrtaksæfingar fyrir U19 ára landslið karla annars vegar og U16 ára landslið karla hins vegar. Til æfinga með U19 ára hópnum hafa verið valdir Borgfirðingurinn Helgi Guðjónsson, leikmaður Fram og Skagamennirnir…Lesa meira

true

Skagamenn fundu ekki taktinn í tapleik gegn Val

Skagamenn fengu Val í heimsókn í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Valur hafði fyrir leikinn þrjá sigra en ÍA einn eftir fyrstu fimm leiki vetrarins. Skagamenn voru án tveggja lykilmanna, Fannars Freys Helgasonar og Áskels Jónssonar, sem er rifbeinsbrotinn. Hafði það sitt að segja í leiknum í gær. Gestirnir voru mun einbeittari og…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn skotnir í kaf á lokamínútunum

Skallagrímsmenn mættu Njarðvíkingum í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Leikið var suður með sjó. Njarðvíkingar höfðu yfirhöndina heilt yfir og þrátt fyrir að Skallagrímur hafi oft gert atlögu að forskoti heimamanna máttu Borgnesingar á endanum sætta sig við tap, 94-80, eftir lokamínútur þar sem þriggja stiga skyttur Njarðvíkinga fóru mikinn. Njarðvíkingar gáfu tóninn…Lesa meira

true

Snæfell steinlá gegn Stjörnunni

Botnlið Snæfells tók á móti Stjörnunni í Stykkishólmi í gær. Nokkur eftirvænting var fyrir leiknum í Hólminum því með liði gestanna lék að þessu sinni gamla Snæfellshetjan og landsliðsmaðurinn Hlynur Bæringsson, sem sneri nýverið heim eftir atvinnumennsku í Svíþjóð. Hann lék með Snæfellsliðinu sem varð bikarmeistari árið 2008 og hampaði bæði Íslands- og bikarmeistaratitlinum árið…Lesa meira

true

Snæfell sigraði Keflavík í kaflaskiptum baráttuleik

Snæfell tók á móti  Keflavík í Domino’s deild kvenna í körfuknattleik í gær.  Leikurinn var mikill baráttuleikur en að lokum fór svo að Snæfell hafði fjögurra stiga sigur, 72-68. Nokkuð jafnræði var með liðunum framan af fyrsta leikhluta en þegar hann var rétt rúmlega hálfnaður tóku Snæfellskonur góðan sprett og skoruðu tíu stig í röð.…Lesa meira