
Á mánudagskvöldið var fjórða kvöld aðaltvímennings Briddsfélags Borgarfjarðar en alls er spilað á fimm kvöldum. Ungstirnin Logi og Heiðar mættu afar einbeittir til leiks og byrjuðu á því að knésetja þá sem mótið leiddu. Áfram hélt djöfulgangurinn í peyjunum allt kvöldið og þegar pakkað var saman kom i ljós að þeir voru komnir á toppinn…Lesa meira








