Íþróttir

true

Samið við Jón Þór um áframhaldandi þjálfun hjá KFÍA

Knattspyrnufélags ÍA mun áfram njóta krafta Jón Þórs Haukssonar yfirþjálfara yngri flokka og afreksstarfs og sem aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla. Jón Þór hefur skrifað undir áframhaldandi samning við Knattspyrnufélag ÍA (KFÍA). Hann hefur starfað hjá félaginu sem þjálfari undanfarin átta ár, tók við starfi yfirþjálfara haustið 2013 en hann hefur síðan þá einnig verið aðstoðarþjálfari mfl.…Lesa meira

true

Spila í Logalandi öll mánudagskvöld

Borgfirskir briddsspilarar eru búnir að dusta rykið af spilastokkunum og farnir að spila vikulega í Logalandi, fyrsta spilakvöldið var 27. september. Þá voru það Sveinbjörn Eyjólfsson og Anna Heiða Baldursdóttir sem skoruðu langmest, eða 72%. Næst var spilað 3. október og þá voru það Jón Einarsson og Ingimundur Jónsson sem skoruðu mest, eða 70%. Mánudaginn…Lesa meira

true

Íslandsmeistararnir of stór biti fyrir Skallagrím

Í gær tók Skallagrímur á móti Íslands- og bikarmeisturum KR síðasta fimmtudag í annarri umferð Domino‘s deildar karla í körfuknattleik. Íslandsmeistararnir höfðu yfirhöndina meira og minna allan leikinn en nýliðar Skallagríms gerðu vel í að standa í þeim á köflum. Þeir urðu þó að játa sig sigraða að leikslokum, 76-90. Leikurinn fór fremur hægt af stað.…Lesa meira

true

Gestirnir stungu af rétt fyrir hálfleik

Önnur umferð Domino‘s deildar karla í körfuknattleik hófst í gær. Snæfell tók á móti Njarðvík og máttu Hólmarar játa sig sigraða með 83 stig gegn 104 stigum gestanna. Leikurinn var nokkuð jafn framan af fyrsta leikhluta en eftir hann miðjan tóku Njarðvíkingar að síga fram úr og náðu sjö stiga forskoti. En Snæfellsmenn svöruðu strax…Lesa meira

true

Skallagrímur vann góðan heimasigur á Grindavík

Skallagrímur tók á móti Grindavík í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikurinn var jafn og spennandi, Skallagrímskonur höfðu þó yfirhöndina allan tímann en náðu aldrei að hrista Grindvíkinga af sér. En að lokum fór svo að Borgnesingar unnu góðan sigur með 80 stigum gegn 72. Jafnræði var með liðunum fyrstu mínútur leiksins og eftir…Lesa meira

true

Snæfell sigraði Val á flautukörfu

  Snæfell vann hádramatískan sigur á Val þegar liðin mættust í Dominos ‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Leikurinn var jafn og spennandi frá upphafi til enda og úrslitin réðust ekki fyrr en á lokasekúndunum. Snæfell hafði yfirhöndina í fyrsta leikhluta en leikurinn fór fremur rólega af stað hvað stigaskorun varðar, en staðan var…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu stórt gegn Hamri

Fyrsti heimaleikur ÍA í 1. deild karla í körfuknattleik fór fram í gær þegar Skagamenn tóku á móti Hamri frá Hveragerði, en gestirnir voru að spila sinn fyrsta leik á tímabilinu. Nokkur veikindi hrjáðu hóp ÍA og nokkrir leikmenn fjarri góðu gamni af þeim sökum. Eftir jafnan fyrri hálfleik tóku gestirnir öll völd á vellinum og…Lesa meira

true

Liðsheildin var aðalsmerki Snæfells í sannfærandi sigri

Eftir tap gegn nágrönnum sínum í Skallagrími í fyrsta leik Domino‘s deildar kvenna var komið að fyrsta heimaleik Íslandsmeistara Snæfells sem leikinn var í gær.  Gestirnir voru Njarðvíkingar, en liðunum er spáð mjög misjöfnu gengi í deildinni í vetur; Snæfelli efsta sætinu en Njarðvíkingum því neðsta. Í leiknum í gær sást greinilega hví spámennirnir röðuðu…Lesa meira

true

Þurftu að játa sig sigraðar eftir spennandi lokamínútur

Eftir góðan sigur á Snæfelli í fyrsta tímabilsins í Domino’s deild kvenna heimsótti Skallagrímur lið Stjörnunnar á laugardaginn. Leikurinn var fremur jafn en Stjarnan var ívið sterkari lungann úr leiknum og sigraði að lokum með ellefu stigum, 86-75, eftir æsispennandi lokafjórðung. Skallagrímskonur byrjuðu betur og leiddu leikinn framan af fyrsta leikhluta. Stjarnan tók nokkrar mínútur…Lesa meira

true

Tap í fyrsta leik hjá Skallagrími

Nýliðar Skallagríms hófu leik í Domino‘s deild karla í körfuknattleik síðastliðið föstudagskvöld þegar liðið heimsótti Hauka að Ásvöllum í Hafnarfirði. Heimamenn réðu ferðinni stærstan hluta leiksins og Skallagrímsmönnum tókst aldrei að ná yfirhöndinni, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Haukar unnu að lokum tíu stiga sigur, 80-70. Jafnt var á öllum tölum framan af fyrsta leikhluta og…Lesa meira