Íþróttir

true

Mættu ofjörlum sínum

Snæfellskonur mættu ofjörlum sínum þegar þær fengu KR í heimsókn í Stykkishólm á laugardaginn. Gestirnir réðu ferðinni frá fyrstu mínútu og sigruðu að lokum örugglega, 56-83. Snæfellskonur áttu afleitan upphafsfjórðung, þar sem þær skoruðu að eins fimm stig gegn 26 stigum KR-inga. Annað var uppi á teningnum í öðrum leikhluta, þar sem jafnt var á…Lesa meira

true

Endurkomusigur Skallagríms

Skallagrímskonur unnu sterkan endurkomusigur á Breiðabliki, 75-73, þegar liðin mættust í Dominos‘ deild kvenna í Borgarnesi á laugardaginn. Blikakonur voru öflugri í upphafsfjórðungnum. Þegar langt var liðið á hann leiddu þær 8-22, en Skallagrímskonur minnkuðu muninn í sjö stig áður en leikhlutinn var úti, 17-24. Þær voru sterkara liðið í öðrum leikhluta og færðust stöðugt…Lesa meira

true

Klifruðu á verðlaunapall

Fyrsta mót Íslandsmeistaramótaraðarinnar í grjótglímu fór fram í Klifurhúsinu í Reykjavík á laugardaginn. Klifurfélag ÍA sendi stóran hóp til keppni í C og B flokki auk þriggja klifrara í fullorðinsflokki. Sverrir Elí Guðnason landaði bronsverðlaunum í C flokki og í B flokki vann Sylvía Þórðardóttir til silfurverðlauna. Brimrún Eir Óðinsdóttir hreppti silfrið í Junior-flokki og…Lesa meira

true

Misstu dampinn í seinni hálfleik

Snæfellskonur biðu lægri hlut gegn Haukum þegar liðin mættust í Stykkishólmi í gærkvöldi. Eftir frekar spennandi fyrri hálfleik náðu gestirnir undirtökunum í þeim síðari og sigruðu að lokum örugglega, 62-84. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en um miðjan fyrsta leikhlutann náðu Haukar yfirhöndinni. Snæfellskonum gekk illa að skora stig og voru tólf stigum…Lesa meira

true

Sterkur sigur Skallagríms

Baráttan um sæti í úrslitakeppni kvenna í körfuknattleik er í algleymingi eftir að Skallagrímur lagði Keflavík, 83-73 í Borgarnesi í gær. Skallagrímskonur byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru mun öflugri í upphafsfjórðungnum. Þær komust snemma leiks í 12-3 og leiddu með tólf stigum eftir fyrsta leikhluta, 27-15. Skallagrímskonur voru áfram sterkari í öðrum leikhluta…Lesa meira

true

Töpuðu á endasprettinum

Skallagrímur sat eftir með sárt ennið að loknum spennandi leik í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Borgnesingar mættu þá liði Álftnesinga í Forsetahöllinni á Álftanesi. Eftir jafnan og spennandi leik náðu heimamenn yfirhöndinni á lokamínútunum og sigruðu að endingu með 14 stigum, 97-83. Borgnesingar voru heldur sterkari í upphafi leiks en Álftnesingar fylgdu…Lesa meira

true

Töpuðu gegn Vestra

Snæfellingar töpuðu eftir hörkuleik gegn sterku liði Vestra, 87-97 þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Stykkishólmi. Hólmarar voru sterkari framan af fyrri hálfleik og leiddu með átta stigum eftir fyrsta leikhluta, 23-15. Vestramenn sneru taflinu sér í vil í öðrum leikhluta og voru sjö stigum yfir í…Lesa meira

true

Mikilvægur sigur ÍA

ÍA vann mikilvægan sigur á Ármanni í botnbaráttu 2. deildar karla í körfuknattleik þegar liðin mættust á Akranesi á laugardag. Eftir jafnan fyrri hálfleik voru Skagamenn sterkari í þeim síðari og sigruðu að lokum með 14 stigum, 102-88. Chaz Franklin var mættur aftur til leiks með ÍA eftir að hafa tekið út leikbann í síðasta…Lesa meira

true

Borgnesingar á botninn

Skallagrímur tapaði gegn Sindra, 91-73, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudaginn. Leikið var á Höfn í Hornafirði. Fyrir leikinn sátu heimamenn í neðsta sæti deildarinnar en Borgnesingar þar fyrir ofan. Sigur Sindramanna gerði það hins vegar að verkum að nú eru það Borgnesingar sem verma botnsætið. Skallagrímsmenn byrjuðu leikinn betur…Lesa meira

true

Ingvar í öðru sæti á Íslandsmeistaramóti

Ingvar Svavarsson frá Crossfit Ægi á Akranesi keppti á Íslandsmeistaramótinu í Crossfit sem haldið var um helgina. Ingvar hafnaði þar í öðru sæti í flokki 35-39 ára með 580 stig, 35 stigum minna en Stefáni Helga Einarsson sem hreppti gullið, en Stefán varð í 6. sæti í flokki 35-39 ára á Heimsleikunum á síðasta ári.Lesa meira