Íþróttir

true

Einar Logi semur við ÍA

Varnarmaðurinn Einar Logi Einarsson hefur samið við ÍA á nýjan leik og mun leika með liði Skagamanna í 1. deild karla í knattspyrnu á sumri komanda. Einar er uppalinn hjá félaginu og lék síðast með ÍA í næstefstu deild árið 2014. Einar er 27 ára og hefur undanfarin tvö sumur leikið með Kára í 3.…Lesa meira

true

Landsleikir framundan í körfunni

Kvennalandslið Íslands í körfuknattleik leikur tvo leiki í undankeppni Eurobasket 2019 á næstu dögum. Fyrst gegn Bosníu í Sarajevó á laugardaginn, 10. febrúar og síðan gegn Svartfjallalandi í Podgorica miðvikudaginn 14. febrúar. Ívar Ágústsson landsliðsþjálfari og aðstoðarþjálfari hans þurftu að gera eina breytingu á hópnum fyrir brottför. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, leikmaður Skallagríms, er ekki orðin…Lesa meira

true

Slæmur þriðji leihluti varð Skallagrími að falli

Skallagrímskonur urðu að játa sig sigraðar gegn Keflavík, 98-69, þegar liðin mættust í 19. umferð Domino‘s deildar kvenna á laugardag. Leikið var suður með sjó. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik tók Keflavík öll völd á vellinum í þeim síðari og sigraði að lokum örugglega. Keflavíkurliðið byrjaði betur og komst í 18-8 um miðjan upphafsfjórðunginn. Skallagrímskonur…Lesa meira

true

Snæfellskonur stjórnuðu ferðinni

Snæfell vann öruggan sigur á Stjörnunni, 83-64, í 19. umferð Domino‘s deildar kvenna kvenna á laugardag. Leikið var í Stykkishólmi og áttu heimakonur afbragðsgóðan leik. Snæfell byrjaði af miklum krafti en gestirnir virtust áhugalausir í upphafi leiks. Snæfellskonur leiddu 13-10 þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður og þá settu þær í fluggírinn. Næstu mínúturnar skoruðu þær…Lesa meira

true

Valdís Þóra komst ekki í gegnum síðari niðurskurð

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, lauk keppni eftir þriðja hring á Oates Vic Open mótinu í Ástralíu um helgina. Eftir góðan seinni hluta á öðrum hring komst Valdís í gegnum fyrsta niðurskurð, þá í 30. sæti. Hún náði sér ekki á strik á þriðja hringnum, fékk þrjá skolla og einn skramba á fyrstu…Lesa meira

true

Skagamenn fengu skell á heimavelli

Skagamenn töpuðu stórt, 54-112, gegn Hamri þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Leikið var á Akranesi. Jafnt var á með liðunum fyrstu mínútur leiksins en leiðir skildu um miðjan upphafsfjórðunginn. Í stöðunni 8-10 settu gestirnir í fluggírinn, skoruðu 18 stig það sem eftir lifði leikhlutans gegn aðeins tveimur stigum Skagamanna.…Lesa meira

true

Naumt tap Snæfells gegn FSu

Snæfell tapaði naumlega á heimavelli gegn FSu, 100-101, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Mikið jafnræði var með liðunum allan fyrri hálfleikinn. Liðin skiptust á að skora á upphafsmínútum leiksins en eftir það leiddu gestirnir með tveimur stigum. Snæfell komst síðan yfir seint í leikhlutanum áður en FSu jafnaði í…Lesa meira

true

Valdís Þóra örugglega áfram á Oates Vic Open mótinu

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, komst örugglega í gegnum niðurskurðinn á Oates Vic Open mótinu sem nú stendur yfir í Ástralíu. Valdís kom í hús á 72 höggum, eða einu höggi undir pari, og er nú í 30. sæti af 144 kylfingum. Eftir að hún hafði leikið á tveimur höggum yfir pari í…Lesa meira

true

Carmen fór á kostum í sigri Skallagríms

Skallagrímur vann góðan heimasigur á Breiðabliki, 66-57, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Skallagrímskonur tóku öll völd á vellinum snemma leiks og tilraunir gestanna til að fá eitthvað fyrir sinn snúð báru engan árangur. Skallagrímur byrjuðu leikinn af krafti og komust í 12-4 seint í fyrsta leikhluta. En gestirnir luku…Lesa meira

true

Snæfell sigraði Njarðvík eftir framlengingu

Snæfell bar siguorð af botnliði Njarðvíkur, 70-73, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í gær. Eftir spennandi leik var jafnt eftir venjulegan leiktíma og þurfti að grípa til framlengingar. Þar réðust úrslitin ekki fyrr en á lokasekúndunum og Snæfellskonur komu því í veg fyrir fyrsta sigur Njarðvíkur í deildinni í vetur. Snæfellskonur höfðu yfirhöndina…Lesa meira