Íþróttir

true

Grundarfjörður sigraði Kormák örugglega

Grundarfjörður tók á móti liði Kormáks frá Hvammstanga í körfunni á laugardaginn. Heimamenn höfðu töluverða yfirburði í leiknum og voru miklu ákveðnari í öllum sínum aðgerðum. Grundfirðingar leiddu með töluverðum mun í hálfleik og það sama var uppi á teningnum í þeim síðari. Stigabilið jókst jafnt og þétt og að endingu var staðan 85-60 heimamönnum…Lesa meira

true

Slök byrjun og slæmur endir

Skallagrímskonur máttu játa sig sigraðar gegn Haukum,  59-72, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Borgarnesi. Leikurinn fór hægt af stað og engin stig voru skoruð fyrstu þrjár mínúturnar, eða þar til gestirnir úr Hafnarfirði komust á blað. Skallagrímskonur fundu sig hins vegar engan veginn í fyrsta leikhluta.…Lesa meira

true

Tap gegn Fjölni

Snæfellingar máttu játa sig sigraða gegn Fjölni á útivelli, 89-65, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Heimamenn stjórnuðu leiknum frá því snemma í fyrsta leikhluta og unnu að lokum öruggan 24 stiga sigur. Snæfellingar skoruðu fyrstu stigin en voru ekki lengi í forystu. Heimamenn héldu Hólmurum stigalausum næstu sex mínúturnar…Lesa meira

true

Snæfell úr leik í bikarnum

Tap eftir spennandi undanúrslitaleik gegn Val   Snæfell og Val mættust í stórskemmtilegum leik í undanúrslitum bikarsins í Laugardalshöll í gærkvöldi. Snæfellskonur höfðu yfirhöndina bróðurpart leiksins en gríðarsterkt lið Vals hélt sér alltaf inni í leiknum. Valur tók síðan öll völd á vellinum í upphafi lokafjórðungsins. Sá leikkafli varð til þess að Valskonur fóru með…Lesa meira

true

Keiluspilarar sóttu verðlaun á Íslandsmót unglinga

Félagar úr Keilufélagi Akraness gerðu gott mót á Íslandsmóti unglinga í keilu, sem haldið var helgina 9. og 10. febrúar síðastliðna. Krakkarnir sneru heim með sjö verðlaun í heildina, þar af fjóra Íslandsmeistaratitla. Jóhann Ársæll Atlason fagnaði Íslandsmeistaratitli í opnum flokki og hann hafnaði í öðru sæti í 1. flokki pilta. Sindri Már Einarsson varð…Lesa meira

true

Bikarslagur í kvöld

Snæfellskonur mæta Val í undanúrslitum Geysisbikarsins í körfuknattleik í kvöld. Leikurinn fer fram í Laugardalshöllinni og hefst kl. 20:15. Snæfell tryggði sér farseðilinn í undanúrslitin með sigri á Haukum leik í átta liða úrslitum, 72-68. Valur lagði hins vegar Keflavík með 89 stigum gegn 71 í síðustu umferð bikarsins. Snæfell varð bikarmeistari kvenna í fyrsta…Lesa meira

true

Vignir Snær á lánssamning til Stord

Knattspyrnumaðurinn Vignir Snær Stefánsson skrifaði á dögunum undir tveggja ára samning við Víking Ólafsvík. Samhliða samkomulaginu er að hann verður lánaður út fyrra ár samningstímans til Stord í Noregi. Vignir Snær er fæddur 1996, uppalinn í Víking Ólafsvík, og gegndi lykilhlutverki hjá liðinu sumarið 2018, lék 24 leiki í Innkasso deildinni og bikarnum og skoraði…Lesa meira

true

Snæfellingar rótburstaðir

Snæfellingar riðu ekki feitum hesti frá viðureign sinni við Hött, þegar liðin mættust í 1. deild karla í Stykkishólmi á föstudagskvöld. Leikurinn var alger einstefna frá fyrstu mínútu og endaði með risasigri gestanna frá Egilsstöðum, 36-122. Mikil kraftur var í liði Hattar í fyrsta leikhluta, þar sem þeir skoruðu 35 stig gegn tíu stigum Snæfellinga.…Lesa meira

true

Slakur þriðji leikhluti reyndist dýrkeptur

Skallagrímskonur töpuðu gegn KR á útivelli, 80-64, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna á laugardaginn. Fyrri hálfleikur var heilt yfir nokkuð jafn en slakur þriðji leikhluti Skallagríms varð til þess að KR-ingar fóru með sigur af hólmi. Borgnesingar höfðu heldur yfirhöndina í upphafi leiks og höfðu fjögurra stiga forskot um miðjan fyrsta leikhluta, 10-14.…Lesa meira

true

Óvænt tap Snæfells

Snæfell tapaði óvænt gegn Haukum, 73-67, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á laugardaginn. Leikið var á Ásvöllum í Hafnarfirði og var leikurinn jafn og spennandi frá fyrstu mínútu. Snæfell hafði heldur yfirhöndina framan af upphafsfjórðungnum, leiddu með fjórum stigum á kafla en Haukar jöfnuðu í 17-17 áður en leikhlutinn var úti.…Lesa meira