
Í dag var dregið í undanúrslitum Maltbikarsins, bikarkeppni KKÍ, en undanúrslitaleikirnir fara fram í Laugardalshöll miðvikudaginn 8. febrúar næstkomandi. Stórleikur undanúrslitanna er Vesturlandsslagur Skallagríms og núverandi bikarmeistara Snæfells í bikarkeppni kvenna. Snæfell sigraði Stjörnuna 68-63 í spennandi leik í átta liða úrslitum á sunnudagskvöld en Skallagrímur valtaði yfir KR, 78-42 á mánudag. Liðin eru bæði í…Lesa meira








