Íþróttir

true

Víkingur á enn von fyrir lokaumferðina

Víkingur Ó. er enn í fallsæti eftir leiki helgarinnar í næstsíðustu umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu. Víkingur tók á móti FH í Ólafsvík á sunnudaginn og lauk leiknum með jafntefli, 1-1. Heimamenn fengu fyrsta alvöru færi leiksins. Þorsteinn Már Ragnarsson tók boltann með sér eftir langa sendingu og sótti einn gegn varnarmanni. Hann komst…Lesa meira

true

Skagamenn fallnir

ÍA féll úr Pepsi deild karla í knattspyrnu í gær þegar Fjölnir sigraði FH 2-1, þar sem sigurmarkið kom ekki fyrr en á lokamínútu leiksins. Fjölnir hafði 21 stig fyrir leikinn en ÍA 15. Til að halda sér í deildinni þurftu Skagamenn því að vinna í leikjunum tveimur sem eftir voru og jafnframt treysta á…Lesa meira

true

Valdís Þóra á leið á fimmta stórmót tímabilsins

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Goflklúbbnum Leyni, snýr aftur til leiks nú í vikunni þegar hún hefur leik á Costa del Sol Open á Spáni, en mótið hefst á morgun. Mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna og verður þetta hennar fimmta mót sem hún tekur þátt í á þessu tímabili. Eins og staðan er í…Lesa meira

true

Svavar Örn fékk silfur á NM unglinga

Norðurlandamót unglinga í kraftlyftingum var haldið í Molde í Noregi um síðustu helgi. Kraftlyftingafélag Akraness átti einn fulltrúa í hópnum sem keppti fyrir Íslands hönd, Skagamanninn Svavar Örn Sigurðsson. Hann keppti í klassískum kraftlyftingum þar sem hann lyfti 200 kg í hnébeygju, 135 kg í bekkpressu og 230 kg í réttstöðulyftu. Samanlagt lyfti hann því…Lesa meira

true

Róðurinn að þyngjast hjá Víkingi

Víkingur Ó. og Víkingur R. mættust í fallbaráttuslag í Pepsi deild karla í gær. Leikurinn, sem fór fram í Ólafsvík, átti upphaflega að fara fram á sunnudaginn en var frestað um sólarhring vegna veðurs. Ekki var veðrið ákjósanlegt til knattspyrnuiðkunar í gær heldur, grenjandi rigning og töluverður strekkingur, en nógu gott til að hægt væri…Lesa meira

true

Stelpurnar okkar mæta Færeyingum í kvöld

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Færeyjum í undankeppni HM. Liðin mætast á Laugardalsvelli klukkan 18:15 í kvöld, en frítt er inn fyrir áhorfendur. Litlar breytingar eru á liðinu frá því á EM í Hollandi. Samkvæmt Uefa.com mun Ísland spila 4-3-3 í leiknum í dag en Elín Metta Jensen er fremst.Lesa meira

true

Dramatískt jafntefli á Akranesvelli

ÍA og Stjarnan mættust í 20. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu í gær. Leikið var á Akranesi og lokatölur urðu 2-2, svekkjandi úrslit fyrir bæði lið. Þar með missti Stjarnan endanlega af Íslandsmeistaratitlinum og von Skagamanna á að halda sæti sínu í deildinni er orðin afar veik. Skagamenn voru ekki lengi að ná forystunni…Lesa meira

true

Káramenn hófu bikar á loft

Lokaumferð 3. deildar karla í knattspyrnu var leikin síðastliðinn laugardag. Lið Kára, sem þegar hafði tryggt sér sigur í deildinni, mætti Dalvík/Reyni í Akraneshöllinni. Káramenn léku með sorgarbönd í leiknum til minningar um Arnar Dór Hlynsson, dyggan stuðningsmann og góðan dreng. Arnar Dór lést síðastliðinn fimmtudag eftir erfið veikindi aðeins 38 ára að aldri. Yfirburðir…Lesa meira

true

Skagaleikur í dag – Víkingsleik frestað

Meistaraflokkur karla hjá ÍA tekur á móti Stjörnunni í tuttugustu umferð Pepsideildarinnar á Akranesvelli í dag klukkan 16. Bæði lið hafa að miklu að keppa, en Skagamenn eru einfaldlega að berjast fyrir veru sinni í deildinni. Stjarnan eygir hins vegar von um að landa Íslandsmeistaratitli. Skagamenn eru sem stendur sjö stigum undir Fjölni sem situr…Lesa meira

true

Skagamenn halda í vonina

ÍA og Fjölnir skildu jöfn þegar liðin mættust í 19. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu í gær. Leikurinn fór fram í Grafarvogi og hvort lið skoraði tvö mörk. Fyrri hálfleikur var fremur tíðindalítill. Heimamenn voru meira með boltann en náðu ekki að skapa sér almennileg færi. Á meðan lágu Skagamenn til baka og freistuðu…Lesa meira