Íþróttir

true

Dramatískt jafntefli á Akranesvelli

ÍA og Stjarnan mættust í 20. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu í gær. Leikið var á Akranesi og lokatölur urðu 2-2, svekkjandi úrslit fyrir bæði lið. Þar með missti Stjarnan endanlega af Íslandsmeistaratitlinum og von Skagamanna á að halda sæti sínu í deildinni er orðin afar veik. Skagamenn voru ekki lengi að ná forystunni…Lesa meira

true

Káramenn hófu bikar á loft

Lokaumferð 3. deildar karla í knattspyrnu var leikin síðastliðinn laugardag. Lið Kára, sem þegar hafði tryggt sér sigur í deildinni, mætti Dalvík/Reyni í Akraneshöllinni. Káramenn léku með sorgarbönd í leiknum til minningar um Arnar Dór Hlynsson, dyggan stuðningsmann og góðan dreng. Arnar Dór lést síðastliðinn fimmtudag eftir erfið veikindi aðeins 38 ára að aldri. Yfirburðir…Lesa meira

true

Skagaleikur í dag – Víkingsleik frestað

Meistaraflokkur karla hjá ÍA tekur á móti Stjörnunni í tuttugustu umferð Pepsideildarinnar á Akranesvelli í dag klukkan 16. Bæði lið hafa að miklu að keppa, en Skagamenn eru einfaldlega að berjast fyrir veru sinni í deildinni. Stjarnan eygir hins vegar von um að landa Íslandsmeistaratitli. Skagamenn eru sem stendur sjö stigum undir Fjölni sem situr…Lesa meira

true

Skagamenn halda í vonina

ÍA og Fjölnir skildu jöfn þegar liðin mættust í 19. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu í gær. Leikurinn fór fram í Grafarvogi og hvort lið skoraði tvö mörk. Fyrri hálfleikur var fremur tíðindalítill. Heimamenn voru meira með boltann en náðu ekki að skapa sér almennileg færi. Á meðan lágu Skagamenn til baka og freistuðu…Lesa meira

true

Víkingur Ó. í fallsæti eftir tap gegn Stjörnunni

Víkingur Ó. datt niður í fallsæti í Pepsi deild karla í knattspyrnu eftir 3-0 tap gegn Stjörnunni á útivelli í gær. Heimamenn voru mun sterkari í fyrri hálfleik og komust yfir eftir hálftíma leik með marki frá Hilmari Árna Halldórssyni. Eyjólfur Héðinsson renndi boltanum á Hilmar sem lét vaða fyrir utan teig. Skot hans var…Lesa meira

true

Miðstigsleikar voru haldnir í Borgarnesi

Nýrverið voru haldnir Miðstigsleikar á Skallagrímsvellinum í Borgarnesi. Miðstigsleikarnir eru fyrsta samstarfsverkefni skólaársins hjá sex grunnskólum á Vesturlandi. Þessir skólar eru: Grunnskólinn á Reykhólum, Auðarskóli í Búðardal, Grunnskóli Borgarfjarðar, Laugargerðisskóli, Grunnskólinn í Borgarnesi og Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit. Keppt var í frjálsum íþróttum og knattspyrnu. Þær greinar frjálsra íþrótta sem keppt var í voru: 60 metra…Lesa meira

true

Fjöldi meta var sleginn á Akranesi um helgina

Þrjú Íslandsmeistaramót í kraftlyftingum fóru fram á Akranesi um liðna helgi. Keppt var í íþróttahúsinu við Vesturgötu og mótshaldari var Kraftlyftingafélag Akraness. Á laugardeginum var keppt í bekkpressu. Kraftlyftingafélag Akraness eignaðist þar Íslandsdsmeistara því Einar Örn Guðnason sigraði 105 kg flokk karla með lyftu upp á 225 kg þá vann Viðar Engilbertsson til silfurverðlauna í 93…Lesa meira

true

Skagamenn eygja enn von

ÍA vann sinn þriðja sigur í Pepsi deild karla í sumar þegar liðið sigraði KA á Akranesi í gær. Lokatölur urðu 2-0 í fínum knattspyrnuleik. Gestirnir frá Akureyri voru sterkari í fyrri hálfleik og sköpuðu sér nokkur ágæt færi. Besta færi þeirra fékk Almarr Ormarsson á 22. mínútu. KA-menn áttu frábæra sendingu inn í teig…Lesa meira

true

Jafnt í ótrúlegum fallbaráttuslag

Víkingur Ó. og Fjölnir mættust í mögnuðum fallbaráttuslag í Pepsi deild karla í knattspyrnu á laugardaginn. Leikurinn fór fram í Ólafsvík og þar réði dramatíkin ríkjum. Lyktaði leiknum með 4-4 jafntefli. Víkingur missti niður 3-0 forskot en náðu að jafna á elleftu stundu og tryggja sér stig úr leiknum. Víkingar skoruðu fyrsta mark leiksins strax…Lesa meira

true

Birta og Sigrún Eva valdar í U17 ára landsliðið

Þær Birta Guðlaugsdóttir markmaður í Víkingi Ólafsvík og Sigrún Eva Sigurðardóttir framherji með ÍA hafa verið valdar til þátttöku í U17 ára landslið Íslands sem heldur til Azerbaijan 29. september næstkomandi til að taka þátt í forkeppni fyrir EM-2018. Báðar hafa þær getið sér afar gott orð á vellinum. Á vef ÍA kemur fram að…Lesa meira