
Um síðastliðna helgi var hið árlega Norðurálsmót á Akranesi haldið. Mótið er fyrir drengi í sjöunda flokki á aldrinum sex-átta ára. Mótið hófst rétt fyrir hádegi á föstudag með skrúðgöngu allra félagsliðanna í mótinu en fyrir göngunni fóru nemendur Tónlistarskóla Akraness. Eftir gönguna var mótið svo formlega sett í Akraneshöllinni af Sólveigu Bergmann fyrir hönd…Lesa meira








