Íþróttir

true

Skagakonur töpuðu gegn Keflavík

Í gær hófst fjórða umferð fyrstu deildar kvenna í knattspyrnu með leik ÍA og Keflavíkur á Akranesvelli. Liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn með sex stig en búast mátti við hörkuleik þar sem líkur eru á að bæði lið verði í toppbaráttu deildarinnar. Veðuraðstæður voru ekki góðar til knattspyrnuiðkunar á Akranesvelli í gær en…Lesa meira

true

Tryggvi Hrafn og Albert í landsliðsverkefni

Í gær kynnti Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U-21 árs liðs karla í knattspyrnu, hópinn sem mun mæta Englandi í vináttuleik 10. júní næstkomandi. Leikið verður fyrir luktum dyrum á æfingasvæði Englendinga St. Georg‘s Park. Tveir Skagamenn voru valdir í hópinn. Framherjinn Tryggvi Hrafn Haraldsson og miðjumaðurinn Albert Hafsteinsson. Báðir hafa þeir leikið vel á tímabilinu; Tryggvi…Lesa meira

true

Valdís Þóra lék vel á fyrsta keppnisdegi

Í gær hóf Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur frá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, leik á Jabra Ladies Open í Evian í Frakklandi. Mótið er hluti af LET Access atvinnumótaröðinni sem er sú næst sterkasta í Evrópu en Jabra Ladies Open er einnig úrtökumót fyrir Evian risamótið sem fram fer í september á þessu ári. Valdísi Þóru…Lesa meira

true

Íslendingum gengur vel á smáþjóðaleikunum

Íslendingar unnu til 12 verðlauna í gær á Smáþjóðaleikunum sem fara fram í San Marino. Íslendingarnir hlutu sjö gull, eitt silfur og fjögur brons. Meðal þátttakenda á mótinu er Ágúst Júlíusson sundgarpur frá Akranesi. Hann vann til bronsverðlauna í 100 m flugsundi í gær á tímanum 55:67 sek. Inga Elín Cryer sundkona varð í 5.…Lesa meira

true

Snæfell semur við sex leikmenn

Sex ungir og efnilegir körfuknattleiksmenn skrifuðu á miðvikudaginn samninga við Körfuknattleiksdeild Snæfells og munu leika með karlaliði félagsins í 1. deildinni á næsta ári. Gunnar Svanlaugsson, formaður kkd. Snæfells og Hjörleifur Kristinn Hjörleifsson, formaður aðalstjórnar félagsins, skrifuðu undir fyrir hönd þess. Leikmennirnir sem rituðu nafn sitt á samninga eru þeir Geir Elías Úlfur Helgason, Jón…Lesa meira

true

Skagamenn í átta liða úrslit bikars í fyrsta sinn í áratug

Í gær tóku Skagamenn á móti Gróttu á Akranesvelli í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar í knattspyrnu karla. Ein deild skilur liðin að á Íslandsmótinu en Skagamenn spila í efstu deild og eru þar í næstneðsta sæti en Grótta er í níunda sæti fyrstu deildar. Það bjuggust því allir við auðveldum sigri Skagamanna þó ekkert sé…Lesa meira

true

Mark á lokamínútunni réði úrslitum

Víkingur Ó. mætti Þrótti R. í þriðju umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu í gær. Leikið var í Reykjavík. Víkingsliðið kom mun ákveðnara til leiks og réði ferðinni í upphafi, án þess þó að skapa sér afgerandi marktækifæri. Eftir því sem leið á komst Þróttur betur inn í leikinn og það voru þær sem áttu…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík tapaði gegn Breiðabliki

Í Kópavogi á sunnudag kepptu lið Breiðabliks og Víkings Ólafsvíkur í fimmtu umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu. Mikil eftirvænting var fyrir leiknum og þá sérstaklega í ljósi þess að Milos Milojevic, nýráðinn þjálfari Breiðabliks, stýrði liðinu í fyrsta sinn í leiknum en hann hóf tímabilið sem þjálfari Víkings Reykjavíkur. Það var slæmur kafli í fyrri…Lesa meira

true

Skagamenn sóttu þrjú stig til Vestmannaeyja

Um síðustu helgi var leikin fimmta umferð í Pepsideild karla í knattspyrnu. Í Vestmannaeyjum fór fram leikur ÍBV og ÍA. Fyrir leikinn voru Eyjamenn með sjö stig en Skagamenn sátu stigalausir á botni deildarinnar. Skagamenn voru því í erfiðri stöðu fyrir leikinn og ræddu knattspyrnuspekingar það fyrir leikinn að Skagamenn yrðu að sigra ætluðu þeir…Lesa meira

true

Naumt tap í stórleik umferðarinnar

ÍA tók á móti HK/Víkingi í stórleik 1. deildar kvenna í knattspyrnu á laugardag, en því var spáð fyrir tímabilið að bæði lið yrðu í toppbaráttu í deildinni í sumar. Þrátt fyrir að gestirnir hafi verið meira með boltann í upphafi leiks voru Skagakonur sprækari á upphafsmínútunum. Mátti engu muna að þær kæmust yfir strax…Lesa meira