Íþróttir

true

Skagamenn eru Vesturlandsmeistrar í boccia

Árlegt Vesturlandsmót félags eldri borgara í boccia fór fram í Borgarnesi síðastliðinn laugardag. Þetta mun vera í ellefta skipti sem mótið er haldið en a.m.k. sex sveitarfélög hafa skipst á að hýsa það. Til leiks mættu að þessu sinni 16 sveitir; fjórar frá Akranesi, Borgarbyggð og Stykkishólmi og tvær sveitir frá Snæfellsbæ og Húnaþingi vestra.…Lesa meira

true

Manuel mun ekki þjálfa Skallagrím áfram

Manuel Rodriguez mun ekki þjálfa kvennalið Skallagríms á næsta keppnistímabili. Manuel greinir sjálfur frá þessu á Facebook-síðu sinni. Þar segir hann að forsvarsmenn félagsins hafi greint frá ákvörðun sinni um að þeir hyggðust leita annað eftir þjálfara. Samningur hans við liðið yrði því ekki endurnýjaður. Manuel tók við þjálfun liðsins fyrir tveimur árum síðar, þegar…Lesa meira

true

Skagakonur féllu úr í leik í bikarnum í gær

ÍA mætti Þrótti frá Reykjavík á Akranesvelli í gær í Borgunarbikar kvenna. Bæði lið leika í fyrstu deild; þar sem ÍA er með sex stig eftir tvo leiki og Þróttur þrjú. Leikurinn var jafn og spennandi fram á síðustu mínútu en það var Þróttur sem sigraði Skagakonur með þremur mörkum gegn tveimur. Það var strax…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu á heimavelli

Í gær mættust lið ÍA og nýliðar Grindavíkur á Akranesvelli í Pepsi deild karla. Báðum liðum var spáð slæmu gengi fyrir tímabilið og má því ætla að þau hafi litið á leikinn sem nokkuð mikilvægan. Skagamenn voru fyrir leikinn stigalausir en Grindvíkingar höfðu sigrað einn leik og gert jafntefli. Það voru Grindvíkingar sem stóðu uppi…Lesa meira

true

Víkingskonur lágu fyrir Selfossi

Víkingur Ó. mætti liði Selfoss í annarri umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu á föstudagskvöld. Leikið var á Ólafsvíkurvelli og máttu heimakonur sætta sig við tap, 0-4. Gestirnir frá Selfossi áttu algjöra draumabyrjun í leiknum. Þær komust yfir strax á 11. mínútu með marki frá Barbáru Sól Gísladóttur og aðeins fjórum mínútum síðar skoraði Karitas…Lesa meira

true

Baráttusigur ÍA í Breiðholtinu

ÍA sigraði ÍR með tveimur mörkum gegn einu þegar liðin mættust í annarri umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu á föstudag. Leikið var í Breiðholtinu í Reykjavík. Um mikinn baráttuleik var að ræða. Heimaliðið mætti ákveðið til leiks og beitti góðri hápressu. Náðu þær á köflum að neyða Skagakonur til að beita löngum spyrnum og…Lesa meira

true

Biðla til almennings og fyrirtækja um stuðning við afrekssjóð sundfólks

Sundfélag Akraness biðlar til fyrirtækja og velunnara félagsins um stuðning til kostnaðarsams uppbyggingarstarfs. Mikil aðsókn hefur verið bæði í sundskóla félagsins og einnig í starfsemi yngri hópanna. Í elstu aldurshópunum er sundfólk sem keppir fyrir hönd félagsins en þar á meðal er afreksfólk sem keppir fyrir Íslands hönd á mörgum mótum, bæði hér á landi…Lesa meira

true

Eyjamenn sigruðu Víking í Ólafsvík

Fjórða umferð Pepsideildar karla hófst í gær í Ólafsvík með leik Víkings og Eyjamanna. Fyrir leikinn höfðu bæði lið aðeins unnið einn leik það sem af er móti. Leikurinn var bragðdaufur og fátt var um fína drætti en baráttan þó mikil. Leiknum lauk með nokkuð öruggum 3-0 sigri Eyjamanna sem með sigrinum lyftu sér upp…Lesa meira

true

ÍA mætir Gróttu í bikarnum

Dregið var í 16 liða úrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu nú í hádeginu. ÍA var eitt vestlenskra liða í pottinum, en Skagamenn báru sigurorð af Fram í ótrúlegum leik á Akranesi á miðvikudagskvöld, 4-3. Skagamenn drógust á móti 1. deildar liði Gróttu og mætast liðin á Akranesvelli þriðjudaginn 30. maí næstkomandi. Bikarmeistarar Vals taka á…Lesa meira

true

Víkingar luku leik í bikarnum í gær

Í vikunni fór fram 32-liða í Borgunarbikar karla í knattspyrnu. Aðeins ein viðureign í 32-liða úrslitum var milli liða í efstu deild en Víkingur Ólafsvík fékk heimaleik gegn Valsmönnum og var sá leikur leikinn í gær. Það var ljóst fyrir leikinn að Víkingum beið erfitt verkefni í ljósi þess að Valsmenn hafa verið það lið…Lesa meira