Fréttir

true

Northern Wave hlaut samfélagsstyrk

Samfélagssjóður Landsbankans úthlutaði nýverið samfélagsstyrkjum að upphæð 15 milljónum króna. Alls hlutu 32 verkefni styrki að þessu sinni. Öll eru þau fjölbreytt en eiga það sameiginlegt að gagnast fólki á öllum aldri og víða um land. Samfélagsstyrkjum Landsbankans er ætlað að styðja mannúðar- og líknarmál, menntamál, rannsóknir og vísindi, forvarnar- og æskulýðsstarf, sértæka útgáfustarfsemi og…Lesa meira

true

Markaðsstemning í Garðalundi

Um síðustu helgi var sannkölluð jólastemning í Garðalundi á Akranesi. Fjörið byrjaði með „leitinni að jólasveininum“ á föstudagskvöld og hélt áfram á laugardag þegar ilmandi jólamarkaður var haldinn í fyrsta sinn í Garðalundi. Þar var ýmislegt á boðstólum, svo sem matur, súkkulaði, handverk og listmunir. Pop – up kaffihúsi var smellt upp í markaðstjaldinu, eldsmiðir…Lesa meira

true

Í útkalli að Skálpanesi

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst klukkan 14:47 í dag beiðni frá lögreglu um aðstoð þyrlu vegna vélsleðaslyss við Skálpanes, suðaustur af Langjökli. Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar var samstundis kölluð út. TF-LÍF fór í loftið klukkan 15:19 og heldur áleiðis að Skálpanesi. Veðuraðstæður á vettvangi eru erfiðar, lítið skyggni og gengur á með hryðjum. Þetta kemur fram í tilkynningu…Lesa meira

true

Snæfell sendir Sefton heim

Sefton Barrett hefur leikið sinn síðasta leik með Snæfelli í Domino‘s deild karla í körfuknattleik. Hann fer af landi brott í jólafrí, eins og svo margir erlendir leikmenn, en mun ekki snúa aftur eftir áramót. Karfan.is greindi fyrst frá. Má því ætla að Snæfell tefli fram nýjum erlendum leikmanni þegar keppni hefst í deildinni á…Lesa meira

true

Skagamenn fengu skell fyrir vestan

Skagamenn fóru vestur til Ísafjarðar síðastliðinn föstudag og mættu liði Vestra í 1. deild karla í körfuknattleik. Eftir að nokkuð jafnræði hafði verið með liðunum framan af leik stungu heimamenn af um miðjan annan fjórðung og unnu að lokum stórsigur, 103-63. Vestramenn byrjuðu betur en ÍA minnkaði muninn í eitt stig um miðjan upphafsleikhlutann. Leikurinn…Lesa meira

true

Vantar um tíu milljarða króna árlega í vegafjárfestingar

„Samtök iðnaðarins harma að í nýju fjárlagafrumvarpi sjáist þess ekki merki að mikilvæg uppbygging á innviðum geti hafist og því ljóst að ekki verður hægt að fara af stað í fjölmörg brýn verkefni sem hafa setið á hakanum. Fjárfestingar í vegakerfinu hafa að jafnaði numið 1,5-2% af landsframleiðslu en frá árinu 2009 hefur hlutfallið verið…Lesa meira

true

Skallagrímur gerði út um leikinn í fyrri hálfleik

Í síðustu umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik fyrir jólafrí mættust nýliðar Skallagríms og Njarðvíkur. Leikið var suður með sjó og hafði Skallagrímur betur, 72-78 en lokatölur leiksins gefa þó ekki rétta mynd af yfirburðum Skallagrímskvenna í leiknum. Snemma lögðu þær grunn að sigrinum og það var ekki fyrr en í lokin að Njarðvík tók…Lesa meira

true

Olía lak af vöruflutningabíl

Vegurinn milli Rifs og Ólafsvíkur var um tíma lokaður í morgun vegna olíuleka frá vöruflutningabíl með aftanívagni. Óhapp þetta varð við afleggjarann í Neðra-Rif. Báðir bílar Slökkviliðs Snæfellsbæjar voru kallaðir út um tíuleytið. Að sögn sjónarvotta var um töluvert mikinn leka að ræða og olíubrák á veginum sem þurfti að hreinsa upp áður en umferð…Lesa meira

true

Sýndu úr hverju þær eru gerðar á lokamínútunum

Síðustu leikir Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik fyrir jólafrí voru leiknir á laugardaginn var. Snæfell tók á móti Grindavík í Hólminum og höfðu Íslandsmeistararnir þriggja stiga sigur, 75-72, eftir spennandi lokamínútur. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en gestirnir komust yfir fyrir miðjan leikhlutann og leiddu að honum loknum, 19-23. Þá hertu Snæfellskonur varnarleikinn…Lesa meira

true

Kalli og Bjarni spiluðu til sigurs

Briddsfélag Akraness hefur spilað á hverju fimmtudagskvöldi frá 29. september í haust og þar til síðastliðinn fimmtudag, eða samtals 12 kvöld. Gekk á ýmsu eins og gengur en alltaf var spilaður eins kvölds tvímenningur. Hlutskarpastir í mótaröðinni urðu Karl Alfreðsson og Bjarni Guðmundsson sem spiluðu á tíu kvöldum og sóttu fjóra sigra, fengu þeir fyrir…Lesa meira