Fréttir

true

Hásinin er öll að koma til hjá fyrirliðanum

Ármann Smári Björnsson, fyrirliði knattspyrnuliðs ÍA, missti af síðustu þremur leikjum sumarsins eftir að hann varð fyrir því óláni að slíta hásin í leik gegn KR í 19. umferð Pepsi deildar karla. Ármann, sem er 35 ára gamall, hefur verið einn af lykilmönnum ÍA undanfarin ár eða allt síðan hann sneri heim úr atvinnumennsku árið…Lesa meira

true

Strengjakvertettinn PiKap heldur tónleika í Tónbergi

Fimmtudaginn 17. nóvember kl. 19.30 verða tónleikar í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi. Bera þeir yfirskriftina Tékkland-Ísland.  Þar verður stefnt saman tékkneskri og íslenskri tónlist og tónlistarflytjendum. PiKap strengjakvartettinn frá Tékklandi leikur strengjakvartett eftir Hildigunni Rúnarsdóttur ásamt kvartettum eftir Smetana, Sylvie Bodorová og Jaroslav Krček og fær svo til liðs við sig Eydísi Franzdóttur ástaróbóleikara…Lesa meira

true

Borgarnes dagatalið komið út

Þessa dagana er Þorleifur Geirsson að gefa út Borgarnes dagatalið 2017. Þetta er í sjöunda skipti sem hann gefur dagatalið út, en um er að ræða veggdagatal með 13 ljósmyndum sem teknar eru í Borgarnesi í öllum mánuðum ársins. Hægt er að skoða myndirnar og sjá nánari upplýsingar á slóðinni: http://www.hvitatravel.is/dagatalLesa meira

true

Hlutu heiðursviðurkenningar HrossVest

Haustfundur Hrossaræktarsambands Vesturlands var haldinn í gær. Þar voru veittar heiðursviðurkenningar fyrir þátttöku í félags- og ræktunarstarfi á Vesturlandi. Eftirtaldir hlutu þau: Gunnar Örn Guðmundsson á Hvanneyri, Jónína Hlíðar á Hvanneyri, Marteinn Valdimarsson Borgarnesingur og fyrrum sveitarstjóri í Dalabyggð, Þórður Bachmann Borgarnesi og Marteinn Njálsson á Vestri-Leirárgörðum. Þau eru hér saman komin en á myndinni…Lesa meira

true

Skuldahlutfall Akraneskaupstaðar snarlækkar

Á fundi bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar 8. nóvember sl. var frumvarpi að fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2017 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2018-2020 vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn 13. desember næstkomandi. Árið 2017 er gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarafkomu í A hluta, rúmlega 185 milljónum króna og 171 milljóna króna afgangi í samstæðunni í heild,…Lesa meira

true

Skallagrímskonur ósigraðar á heimavelli

Skallagrímskonur hafa farið vel af stað í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í vetur og oft leikið afar vel, ekki síst á heimavelli. Fjósið er að verða mikið heimavígi og fengu leikmenn Stjörnunnar að kynnast því þegar liðin mættust í Borgarnesi á laugardaginn. Skallagrímur hafði yfirhöndina nær allan leikinn og vann að lokum góðan sigur, 75-63.…Lesa meira

true

Grundarfjörður sigraði ÍR-b

Körfuknattleikslið Grundarfjarðar tók á móti b-liði ÍR í íþróttahúsi Grundarfjarðar laugardaginn 12. nóvember. Grundfirðingar spiluðu í hvítum búningum í þessum leik og þurftu að lána gestunum svörtu búningana sína þar sem að þeir voru í búningavandræðum. Heimamenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og náðu góðri forystu eftir fyrsta leikhluta. Gestirnir bitu aðeins frá sér þegar…Lesa meira

true

Óskað verður eftir að apótekaræningi verði settur í farbann

Lögreglan á Vesturlandi mun óska eftir því að maðurinn sem framdi vopnað rán í Apóteki Ólafsvíkur í síðustu viku verði úrskurðaður í farbann, en hann er útlenskur. Við rannsókn á ráninu hefur komið í ljós að sami maðurinn framdi einnig vopnað rán í lyfjaverslun í Suðurveri í Reykjavík nokkru áður, eða laugardaginn 5. nóvember. Það…Lesa meira

true

Snæfell valtaði yfir Njarðvík

Íslandsmeistarar Snæfells mættu liði Njarðvíkur í Domino‘s deild kvenna á laugardag. Leikið var suður með sjó og höfðu Snæfellskonur stórsigur, 38-69. Mikilvæga leikmenn vantaði í bæði lið. Njarðvíkingar voru án Carmen Tyson-Thomas og fyrirliði Snæfells, Gunnhildur Gunnarsdóttir, gat ekki leikið með sínu liði vegna höfuðhöggs sem hún varð fyrir í leiknum gegn Skallagrími. Hins vegar reimaði…Lesa meira

true

Setja upp færanlegan búnað til að bregðast við hópslysum

Á næstu þremur árum munu Isavia ohf. og Slysavarnafélagið Landsbjörg sameinast um að bæta verulega búnað sem auðveldar björgunarsveitum víða um land að bregðast við hópslysum sem hugsanlega verða á þjóðvegum landsins, utan alfaraleiðar eða við vinsæla ferðamannastaði. Samningur þess að lútandi var kynntur í síðustu viku. Samkvæmt honum verða útbúnar sérstakar kerrur með sérhæfðum…Lesa meira