
Fimmtudaginn 17. nóvember kl. 19.30 verða tónleikar í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi. Bera þeir yfirskriftina Tékkland-Ísland. Þar verður stefnt saman tékkneskri og íslenskri tónlist og tónlistarflytjendum. PiKap strengjakvartettinn frá Tékklandi leikur strengjakvartett eftir Hildigunni Rúnarsdóttur ásamt kvartettum eftir Smetana, Sylvie Bodorová og Jaroslav Krček og fær svo til liðs við sig Eydísi Franzdóttur ástaróbóleikara…Lesa meira








