Fréttir

true

Fjölbrautanemendur dimmiteruðu

Lokahóf útskriftarnema við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi var haldið í gær. Af því tilefni mættu útskriftarnemar í skólann klæddir sem tölvuleikjapersónurnar Super Mario og félagi hans Luigi og hófu þeir daginn á því að bjóða starfsfólki skólans í morgunmat. Á meðan aðrir nemendur skólans sátu í fyrstu kennslustund dagsins hituðu útskriftarnemarnir upp fyrir skemmtun á…Lesa meira

true

Doktorar heiðraðir á fullveldisdaginn í Háskóla Íslands

Sextíu og sex doktorar sem brautskráðst hafa frá Háskóla Íslands á tímabilinu 1. desember 2015 til 1. desember 2016 tóku í gær við gullmerki skólans á árlegri Hátíð brautskráðra doktora. Með hátíðinni vill Háskóli Íslands fagna því öfluga starfi sem doktorsnemar vinna innan skólans og þeim aukna krafti sem færst hefur í rannsóknatengt nám í…Lesa meira

true

Snæfell varð að lúta í gras gegn Haukum

Snæfell tók á móti Haukum í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Snæfell hefur átt erfitt uppdráttar í deildinni það sem af er vetri. Liðið var fyrir leikinn án sigurs á botni deildarinnar og það breyttist ekki í gær því Haukar sigruðu, 78-95. Heimamenn höfðu heldur yfirhöndina í upphafi leiksins og leiddi fyrstu mínúturnar.…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn mættu ofjörlum sínum á Sauðárkróki

Skallagrímur mætti Tindastóli í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var norður á Sauðárkróki. Stólarnir voru í miklu stuði á Króknum, voru betri allan leikinn og unnu að lokum öruggan sigur, 97-75. Heimamenn byrjuðu af krafti og voru komnir í 12-0 áður en tvær mínútur voru liðnar af leiknum. Skallagrímsmenn tóku leikhlé og…Lesa meira

true

Bjartmar gefur út Sonnettur síkvikra daga

Í dag kemur úr prentun ljóðabókin “Sonnettur síkvikra daga” eftir Bjartmar Hannesson bónda á Norður-Reykjum í Borgarfirði. Bjartmar hefur í gegnum tíðina samið og flutt gamanvísur við hin ýmsu tækifæri og gefið út geisladiskana Sögur úr sveitinni og Fleiri sögur úr sveitinni. Þá hefur hann samið tvær revíur sem settar hafa verið upp af leikdeild…Lesa meira

true

Nýtt hvalaskoðunarskip til Grundarfjarðar

Láki Tours, sem gerir út hvalaskoðunarbáta frá Grundarfirði, fjárfesti á dögunum í nýju skipi til hvalaskoðunar. Skipið kemur frá Noregi þar sem það þjónaði áður sem sjúkraflutningaskip og seinna birgðaflutningaskip fyrir olíuborpalla. Gísli og Skarphéðinn Ólafssynir reka fyrirtækið saman og eru þeir hæstánægðir með nýja skipið. Það var norsk áhöfn sem sigldi skipinu hingað til…Lesa meira

true

Jólaljúfmetismarkaður í Hólminum

Ljúfmetismarkaðurinn Stykkishólmz Bitter hefur slegið í gegn í Hólminum þegar hann hefur verið settur upp. Laugardaginn 17. desember er ráðgerður jólaljúfmetismarkaður að Reitarvegi 16 og veðrur hann opinn frá klukkan 14 til 16. Á markaðnum sýna veitingamenn og matvælaframleiðendur í Stykkishólmi og nágrenni listir sínar og bjóða upp á hið ýmsa ljúfmeti með jólaívafi. Markaðurinn…Lesa meira

true

Hótel tekið að rísa í Borgarnesi

Í lok síðustu viku var unnið af krafti við að reisa einingar í veggi fyrstu hæðar á nýju fimm hæða hóteli við Borgarbraut 59 í Borgarnesi. Það er fyrirtækið Hús og lóðir ehf. sem er byggingaraðilinn en verktaktafyrirtækið SÓ húsbyggingar ehf. byggir og hefur yfirumsjón með reisingunni og allri framkvæmd. Forsteyptar einingar koma frá Smellinn…Lesa meira

true

Góður sigur Skallagríms þrátt fyrir erfiða byrjun

Skallagrímskonur gerðu góða ferð suður með sjó í gærkvöldi og sóttu tvö stig til Grindavíkur þegar keppni hófst að nýju í Domino‘s deild kvenna eftir landsleikjahlé. Eftir erfiða byrjun komst Skallagrímsliðið betur og betur inn í leikinn eftir því sem leið á og hafði að lokum sigur, 61-72. Skallagrímur var lengi í gang í leiknum…Lesa meira

true

Ekkert fjarskiptafyrirtæki mun taka gjald fyrir rafræn skilríki

„Neytendasamtökin fagna því að öll stóru fjarskiptafyrirtækin skuli nú hafa hætt við gjaldtöku af neytendum vegna notkunar rafrænna skilríkja. Þar með hafa þau í raun fallist á kröfu samtakanna um gjaldfrelsi neytenda þar sem óverulegur kostnaður fellur á fjarskiptafyrirtækin vegna notkunar rafrænna skilríkja. Engin efnisleg rök eru því fyrir gjaldheimtunni,“ segir í tilkynningu frá Neytendasamtökunum.…Lesa meira