Fréttir

true

Skallagrímsmenn mættu ofjörlum sínum á Sauðárkróki

Skallagrímur mætti Tindastóli í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var norður á Sauðárkróki. Stólarnir voru í miklu stuði á Króknum, voru betri allan leikinn og unnu að lokum öruggan sigur, 97-75. Heimamenn byrjuðu af krafti og voru komnir í 12-0 áður en tvær mínútur voru liðnar af leiknum. Skallagrímsmenn tóku leikhlé og…Lesa meira

true

Bjartmar gefur út Sonnettur síkvikra daga

Í dag kemur úr prentun ljóðabókin “Sonnettur síkvikra daga” eftir Bjartmar Hannesson bónda á Norður-Reykjum í Borgarfirði. Bjartmar hefur í gegnum tíðina samið og flutt gamanvísur við hin ýmsu tækifæri og gefið út geisladiskana Sögur úr sveitinni og Fleiri sögur úr sveitinni. Þá hefur hann samið tvær revíur sem settar hafa verið upp af leikdeild…Lesa meira

true

Nýtt hvalaskoðunarskip til Grundarfjarðar

Láki Tours, sem gerir út hvalaskoðunarbáta frá Grundarfirði, fjárfesti á dögunum í nýju skipi til hvalaskoðunar. Skipið kemur frá Noregi þar sem það þjónaði áður sem sjúkraflutningaskip og seinna birgðaflutningaskip fyrir olíuborpalla. Gísli og Skarphéðinn Ólafssynir reka fyrirtækið saman og eru þeir hæstánægðir með nýja skipið. Það var norsk áhöfn sem sigldi skipinu hingað til…Lesa meira

true

Jólaljúfmetismarkaður í Hólminum

Ljúfmetismarkaðurinn Stykkishólmz Bitter hefur slegið í gegn í Hólminum þegar hann hefur verið settur upp. Laugardaginn 17. desember er ráðgerður jólaljúfmetismarkaður að Reitarvegi 16 og veðrur hann opinn frá klukkan 14 til 16. Á markaðnum sýna veitingamenn og matvælaframleiðendur í Stykkishólmi og nágrenni listir sínar og bjóða upp á hið ýmsa ljúfmeti með jólaívafi. Markaðurinn…Lesa meira

true

Hótel tekið að rísa í Borgarnesi

Í lok síðustu viku var unnið af krafti við að reisa einingar í veggi fyrstu hæðar á nýju fimm hæða hóteli við Borgarbraut 59 í Borgarnesi. Það er fyrirtækið Hús og lóðir ehf. sem er byggingaraðilinn en verktaktafyrirtækið SÓ húsbyggingar ehf. byggir og hefur yfirumsjón með reisingunni og allri framkvæmd. Forsteyptar einingar koma frá Smellinn…Lesa meira

true

Góður sigur Skallagríms þrátt fyrir erfiða byrjun

Skallagrímskonur gerðu góða ferð suður með sjó í gærkvöldi og sóttu tvö stig til Grindavíkur þegar keppni hófst að nýju í Domino‘s deild kvenna eftir landsleikjahlé. Eftir erfiða byrjun komst Skallagrímsliðið betur og betur inn í leikinn eftir því sem leið á og hafði að lokum sigur, 61-72. Skallagrímur var lengi í gang í leiknum…Lesa meira

true

Ekkert fjarskiptafyrirtæki mun taka gjald fyrir rafræn skilríki

„Neytendasamtökin fagna því að öll stóru fjarskiptafyrirtækin skuli nú hafa hætt við gjaldtöku af neytendum vegna notkunar rafrænna skilríkja. Þar með hafa þau í raun fallist á kröfu samtakanna um gjaldfrelsi neytenda þar sem óverulegur kostnaður fellur á fjarskiptafyrirtækin vegna notkunar rafrænna skilríkja. Engin efnisleg rök eru því fyrir gjaldheimtunni,“ segir í tilkynningu frá Neytendasamtökunum.…Lesa meira

true

Gerðardómur dæmir HS orku í vil í raforkusölumáli í Helguvík

Alþjóðlegur gerðardómur hefur úrskurðað í máli sem HS Orka höfðaði gegn Norðuráli Helguvík árið 2014. Dómurinn kemst að þeirri niðurstöðu, öfugt við úrskurð gerðardóms frá árinu 2011, að HS Orku beri ekki að standa við ákvæði raforkusamnings sem fyrirtækið undirritaði við Norðurál í apríl 2007 vegna álvers í Helguvík í Garði. Norðurál vildi að HS…Lesa meira

true

Fyrsta tap Snæfells í Hólminum svo árum skiptir

Í gærkvöldi hófst keppni í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik að nýju eftir landsleikjahlé þegar leikin var heil umferð. Snæfell mætti Val í Stykkishólmi og urðu Íslandsmeistararnir að játa sig sigraða á heimavelli eftir framlengdan leik, 73-82. Er þetta fyrsta tap Snæfells á heimavelli svo árum skiptir, slíkt vígi hefur íþróttahúsið í Stykkishólmi verið. Valur…Lesa meira

true

Hálka á vegum

Í tilkynningu frá Vegegerðinni í morgun er bent á að nú eru hálka eða hálkublettir á flestum vegum á Vesturlandi. Snjóþekja og snjókoma er á Holtavörðuheiði.Lesa meira