Fréttir

true

Óhöpp í umferðinni

Í dagbók Lögreglunnar á Vesturlandi kemur fram að bílvelta varð á Snæfellsnesi í liðinni viku. Leituðu tveir aðstoðar hjá heilsugæslu vegna minniháttar áverka. Hvasst var á vettvangi og fram kom hjá ökumanni að bifreiðin hefði fokið út af með þessum afleiðingum. Harður árekstur varð milli tveggja bifreiða nærri Bifröst í Norðurárdal með þeim afleiðingum að…Lesa meira

true

Gönguhópur Feban fór í listaverkagöngu

Það var útitekinn og sællegur hópur eldri borgara sem tók teygjuæfingar og lauk þar með hálfs annars tíma gönguferð sinni framan við ritstjórnarskrifstofu Skessuhorns í morgun. Þær Helga Höskuldsdóttir göngustjóri og Guðbjörg Árnadóttir sögukona leiddu gönguna en á ferðalaginu voru skoðuð tólf listaverk víðs vegar um Akranes og sagði Guðbjörg frá verkunum og tilurð þeirra.…Lesa meira

true

„Einn til fjalla er eins og andlegt jóga fyrir mig“

Rætt við Axel Frey Eiríksson um veiðiferilinn, leiðsögumannsstarfið og rjúpnaveiðitímabilið Rjúpnaveiðar hófust föstudaginn 25. október og ætlaði Axel Freyr Eiríksson að fara á veiðar næsta dag. Vegna veðurs tók hann ákvörðun um að fresta för sinni en blaðamaður náði að hitta á hann þennan dag á heimili hans í Ferjukoti í Borgarfirði. Þar var hann…Lesa meira

true

Pétur Snær Íslandsmeistari í rúningi

Sauðfjárbændur í Dölum gerðu sér dagamun í lok sláturtíðar – myndasyrpa Haustfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu (FSD) fór fram um liðna helgi. Viðburðurinn er uppskeruhátíð bænda í héraðinu og naut góðrar aðsóknar. Venju samkvæmt voru haldnar lambhrútasýningar í báðum varnarhólfum sýslunnar. Á föstudagskvöld komu saman lambhrútar úr Suðurdölum í Hlíð í Hörðudal þar sem margt…Lesa meira

true

Gunnar heilsaði upp á forsetann

Síðastliðinn sunnudag fór hann Gunnar Mánason með afa sínum og ömmu í messu í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Eftir athöfnina var gestum boðið í kirkjukaffi í Vatnaskógi. Þangað mætti Halla Tómasdóttir forseti Íslands ásamt öðrum gestum. Heilsaði hún upp á Gunnar sem þarna situr fyrir á mynd hjá Elmari afa.Lesa meira

true

Loftbyssa fannst í bifreið

Í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi voru höfð afskipti af um 40 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í liðinni viku. Þrír ökumenn eru grunaðir um ölvun við akstur. Einn ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og er hann einnig grunaður um brot á vopnalögum eftir að loftbyssa fannst í fórum hans. Einnig…Lesa meira

true

Lokahóf Knattspyrnufélags ÍA – Viktor og Madison valin best

Viktor Jónsson og Madison Brooke Scwartzenberger voru valin bestu leikmenn meistaraflokka ÍA á lokahófi félagsins sem fram fór á laugardaginn á Jaðarsbökkum. Bestu ungu leikmenn meistaraflokks voru valin þau Hinrik Harðarson og Birna Rún Þórólfsdóttir. Fram kemur á FB síðu KFÍA að Madison kom til félagsins í byrjun leiktíðar úr bandaríska háskólaboltanum og smellpassaði inn…Lesa meira

true

Bókmenntakvöld haldið á Bókasafni Akraness

Í gærkvöldi komu sex rithöfundar í heimsókn á Bókasafn Akraness og lásu upp úr nýútkomnum verkum sínum fyrir nánast fullu húsi. Yfirskrift kvöldsins var Þrír plús þrír eru sextíu og er Bókmenntakvöldið orðið fastur liður á Vökudögum. Það hefur skipað sér fastan sess hjá mörgum síðastliðin ár en það var nú haldið í ellefta sinn.…Lesa meira

true

Vel heppnað Westside í Borgarnesi

West Side er íþróttakeppni og ball sem árlega er haldið af nemendafélögum allra framhaldsskóla á Vesturlandi; Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi, Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Í ár eru 15 ár síðan fyrsta West Side keppnin fór fram en keppnin í ár var haldin í Borgarnesi. Nemendur hófu daginn á íþróttakeppni í…Lesa meira

true

Vörður tryggingar opnar í Stykkishólmi

Vörður tryggingar opnar nýja þjónustuskrifstofu í Stykkishólmi mánudaginn 4. nóvember. Þjónustuskrifstofan verður staðsett í útibúi Arion banka á Aðalgötu 24 og verður því hægt að sækja sér bæði trygginga- og bankaþjónustu á sama stað. „Opnunin í Stykkishólmi er liður í þeirri vegferð Varðar að vera með þjónustuskrifstofur víða um land í samstarfi við Arion svo…Lesa meira