
Þriðjudaginn 19. desember síðastliðinn skrifuðu fulltrúar Ungmennafélagsins Aftureldingar á Reykhólum og Reykhólahrepps undir styrktar- og samstarfssamning til þriggja ára. Markmið samningsins er að skilgreina og efla tengsl og samskipti á milli sveitarfélagsins og Ungmennafélagsins Aftureldingar. Samningnum er ætlað að styðja við æskulýðs- og íþróttastarf sem fram fer á vegum Umf. Aftureldingar, íbúum sveitarfélagsins til heilla.…Lesa meira








