Hreppsnefnd ekki einhuga um beiðni 22 íbúa um fund vegna sameiningarmála

Á fundi hreppsnefndar Skorradalshrepps 18. desember síðastliðinn voru lögð fram bréf frá 22 íbúum í hreppnum þar sem þeir óskuðu eftir íbúafundi um sameiningarmál. Eins og kunnugt er hafa bæði hreppsnefnd Skorradalshrepps og sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkt að hefja óformlegar viðræður um sameiningu sveitarfélaganna. Hreppsnefnd Skorradalshrepps klofnaði í afstöðu sinni til erindis íbúanna og lögðu þeir Pétur Davíðsson og Óli Rúnar Ástþórsson fram svohljóðandi bókun: „Við þökkum fyrir þessa beiðni 22 íbúa Skorradalshrepps og leggjum til að íbúafundur verði haldinn innan mánaðar til þess að fara yfir sameiningarmál sveitarfélagsins. Vísast annars í bréf íbúanna.“

Hreppsnefnd ekki einhuga um beiðni 22 íbúa um fund vegna sameiningarmála - Skessuhorn