Fréttir

true

Ný stofnun í stað Menntamálastofnunar

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu er ný þjónustu- og þekkingarstofnun sem kemur í stað Menntamálastofnunar sem verður lögð niður frá 1. apríl 2024. Stofnunin mun starfa í þágu barna og ungmenna á sviði menntamála og á að þjónusta leik-, grunn- og framhaldsskóla um land allt með áherslu á gæði menntunar og skólaþjónustu. „Miðstöð menntunar og skólaþjónustu…Lesa meira

true

Útkall í Borgarnesi og varað við hættum á ótraustum ís

Síðastliðinni sunnudag, um hálf þrjú leytið, fengu viðbragðsaðilar í Borgarnesi útkall vegna mögulegs slyss á ís í Sandvík sem er fyrir neðan ferðaþjónustubæinn Bjarg. Sést hafði til mannaferða úti á ísnum sem þá var á víkinni og talið að aðstoðar væri þörf. Góðu heilli reyndist það síðan ekki vera og útkallið var dregið til baka…Lesa meira

true

Beita nýrri nálgun í aðgerðum gegn riðu

Einungis hluti fjárstofnsins skorinn niður og hlíft þeim kindum sem bera verndandi arfgerðir Nú er niðurskurði vegna riðu á bænum Stórhóli í Húnavatnssýslu lokið en riða greindist í skimunarsýni sem tekið var úr kind frá bænum fyrr í haust. Matvælastofnun upplýsir að ákveðið hafi verið að fara í hlutaniðurskurð í fyrsta sinn og var sú…Lesa meira

true

Veðrabreyting framundan – varað við slabbi og hálku í kvöld

Framan af degi verður fremur hæg breytileg átt og bjart að mestu, frost 2 til 11 stig. Gengur í sunnan 5-13 m/s á Suður- og Vesturlandi síðdegis í dag og þykknar upp með rigningu eða snjókomu með köflum. Hlýnar smám saman í veðri. Á morgun verður sunnan 10-18 m/sek og talsverð rigning sunnan- og vestanlands,…Lesa meira

true

Jólaútvarp Óðals í fullum gangi

Jólaútvarp Nemendafélags Grunnskólans í Borgarnesi er sent út þessa vikuna, dagana 11.-15. desember kl. 10-22 alla dagana. Blaðamaður Skessuhorns leit við í hljóðverinu í félagsmiðstöðinni Óðali síðdegis í gær en þá voru krakkarnir að senda þætti sína út í beinni. Þess má geta að Lionsklúbburinn Agla gaf Óðali tækjabúnað upp á 100.000 krónur í síðustu…Lesa meira

true

Pottormar héldu Litlu jólin

Að venju tóku þau daginn snemma fastagestirnir í heita pottinum á Jaðarsbökkum á Akranesi. Klukkan 6 í morgun var boðið upp á veitingar og glaðst í froststillunni löngu fyrir sólarupprás. Helga Ólöf Óliversdóttir sendi Skessuhorni meðfylgjandi stemningsmynd.Lesa meira

true

Góður árangur hjá Einari Margeiri á sínu fyrsta Evrópumeistaramóti

Einar Margeir Ágústsson sundmaður frá Akranesi átti mjög góða helgi á Evrópumeistaramóti fullorðinna í 25m laug sem fram fór um liðna helgi. Þar keppti hann ásamt fimm öðrum sundmönnum frá Íslandi. Í 200m bringusundi gerði Einar Margeir sér lítið fyrir og setti nýtt unglingamet á tímanum 2.12,15, sem er bæting á unglingameti um 2,1 sekúndu.…Lesa meira

true

Hækka frístundastyrk í Snæfellsbæ

Bæjarstjórn Snæfellsbæjar hefur samþykkt að hækka upphæð frístundastyrks fyrir hvert barn í 33 þúsund krónur á ári og víkka aldursbilið í báða enda. Frístundastyrkur var fyrst tekinn upp hjá Snæfellsbæ árið 2019 og hljóðaði þá upp á 20 þúsund krónur á ári og gilti til niðurgreiðslu þátttökugjalda í skipulögðu íþrótta- og tómstundarstarfi barna og unglinga…Lesa meira

true

Verk eftir Erró verður sett upp í Ólafsvík

Snæfellsbær verður 30 ára á næsta ári. Fram kemur í bókun bæjarstjórnar í síðustu viku að í tilefni tímamótanna hafi markaðs- og kynningarfulltrúi sveitarfélagsins verið í samstarfi við samstarfsmenn listamannsins Erró um að setja upp listaverk eftir hann í nágrenni Pakkhússins í Ólafsvík næsta vor. Erró, Guðmundur Guðmundsson, er fæddur í Ólafsvík 19. júlí 1932…Lesa meira

true

Sýndu Litlu stúlkuna með eldspýturnar

Söngleikjadeild Tónlistarskóla Borgarfjarðar sýndi tvær sýningar af Litlu stúlkunni með eldspýturnar í Borgarneskirkju í síðustu viku. Nítján börn tóku þátt í sýningunni sem leikstýrt var af Theodóru Þorsteinsdóttur og Hönnu Ágústu Olgeirsdóttur en Jónína Erna Arnardóttir lék undir á píanó.Lesa meira