Gitta og Agnes stóðu vaktina í Óðali þegar blaðamaður leit við. Ljósmyndir: sþ

Jólaútvarp Óðals í fullum gangi

Jólaútvarp Nemendafélags Grunnskólans í Borgarnesi er sent út þessa vikuna, dagana 11.-15. desember kl. 10-22 alla dagana. Blaðamaður Skessuhorns leit við í hljóðverinu í félagsmiðstöðinni Óðali síðdegis í gær en þá voru krakkarnir að senda þætti sína út í beinni. Þess má geta að Lionsklúbburinn Agla gaf Óðali tækjabúnað upp á 100.000 krónur í síðustu viku sem nýtist nú í útsendingu jólaútvarpsins.

Jólaútvarp Óðals í fullum gangi - Skessuhorn